Skírnir - 01.01.1943, Blaðsíða 139
Asmundur Guömundsson
Davíð koimngiir
Erindi það, sem hér birtist, er eingöngu sögulegt og
reist á rannsókn þeirra heimilda, sem til eru um Davíð
konung í Samúelsbókum Biblíunnar og 1. Konungabók.
Eru sumar frásagnir í heimildum þeim svo gagnmerkar
og öruggar, að þær munu eiga rót sína að rekja til ná-
komins vinar Davíðs, Abjatars prests, sem síðustu ár ævi
sinnar dvaldist í Anatótþorpi skammt norður af Jerúsalem
og gróðursetti þar Gyðingum menntalund líkt og Sæmund-
ur prestur fróði oss fslendingum. En til fulls mun þó ekki
gengið frá þessum minningum um Davíð fyrr en einni öld
eftir andlát hans, um 970. Rúmið, sem ég hefi hér yfir að
ráða, er mikils til ofnaumt til þess, að ég geti gert grein
fyrir rannsókninni. Verð ég að láta mér nægja að skýra
frá niðurstöðunum.
I.
Davíð er fæddur um 1040 í Betlehem í Júda og vex þar
upp. Þaðan er einnig föðurætt hans, bændur mann fram
af manni í beinan karllegg. Kona eins þeirra, en lang-
amma Davíðs, Rut, mun hafa verið frá Móab, fjallaland-
inu fyrir austan Dauðahaf. Verður það ráðið af skáld-
sögunni fögru, Rutarbók, enda kom Davíð foreldrum sín-
um síðar fyrir í Móabslandi, er hann varð fyrir konungs-
reiði og þurfti að fara huldu höfði. Hann gerist mannvæn-
legur snemma, en virðist þó ekki hafa notið að því skapi
ástríkis á heimili sínu. Hann gætir sauða í fyrstu, en verð-
ur brátt bardagamaður mikill í stríði því, sem ísraels-
menn eiga við Filista. Honum er lýst svo, að hann sé
fagureygur og vel vaxinn, hreystimenni, vel máli farinn