Skírnir - 01.01.1943, Blaðsíða 119
Skírnir
Ræðismenn
117
til uden Undtagelse at bære og svare de derpaa hæftende
Byrder og Afgifter, saa og om han driver Handel, i Hen-
seende til denne lige med Vore egne Undersaatter være
Landets Forfatning og Love samt Stedets Underövrighed,
hvor han befinder sig, undergiven“.
II.
Skal þá vikið að störfum ræðismanna, og má til glöggv-
unar skipta þeim í fjóra aðalflokka, gæzlu viðskiptahags-
muna, eftirlit með siglingum, vernd ríkisborgara sendi-
ríkisins og notarialstörf.
Gæzla viðskiptahagsmuna sendiríkisins, hvort sem um
er að ræða verzlun, fiskveiðar, siglingar, iðnað, landbún-
að eða aðrar atvinnugreinir, er þýðingarmest allra starfa
ræðismanna. Hið fyrsta, sem ræðismanni ber að gera, er
hann tekur við starfi sínu, er að kynna sér atvinnumál
umdæmis síns með sérstöku tilliti til hagsmuna sendiríkis-
ins. Sé til viðskiptasamningur milli ríkjanna, verður ræð-
ismaður að kynna sér rækilega efni hans, og fylgjast með
því, að viðtökuríkið efni þær skyldur, sem á því hvíla sam-
kvæmt honum. Þá er það og hlutverk ræðismanns að fylgj-
ast með öllum þeim ráðstöfunum, sem gerðar eru í við-
tökuríkinu og máli skipta fyrir viðskiptin við sendiríkið.
Ræðismanni ber skylda til þess, eftir því sem tilefni gefst,
að reyna að greiða fyrir ráðstöfunum, sem eru hagkvæm-
ar fyrir sendiríkið, og á hinn bóginn, sé um framkvæmdir
að ræða, sem geta orðið viðskiptahagsmunum sendiríkis-
ins til tjóns, ber honum að reyna að kippa málinu í lag. Ef
ræðismaður verður þess var, að útflutningsafurðir sendi-
ríkisins sæta að einhverju leyti lakari kjörum en sams
konar vörur frá öðrum löndum, ber honum að gera sitt
ýtrasta til þess að fá slíkt leiðrétt.
Einn aðalþátturinn í starfi ræðismanna til eflingar við-
skipta lýsir sér í skýrslugjöfum. Tilgangur þeirra er að
gefa ríkisstjórn og verzlunarstétt sem gleggstar upplýs-
ingar um allt það, sem þýðingu hefir fyrir viðskiptalífið
með tilliti til eflingar þess. Slíkar skýrslur hljóta alltaf að