Skírnir - 01.01.1943, Blaðsíða 80
78
Irving Langmuir
Skíi-nir
eða Hitler eða einhver annar einstaklingur eða flokkur
manna hefði eða hefði ekki hagað sér eins og þeir gerðu.
Það var nærri því vísindalega sannað, að Þýzkaland, sem
bauð heiminum raunsýnilega byrgin, hefði rétt til að beita
miskunnarlausum aðferðum — Þjóðverjar mundu, vegna
atorku og annarra eiginleika sinna, óhjákvæmilega fá og
ættu að fá meira rúm í sólskininu en Stóra-Bretland, sem
væri á fallanda fæti, svo að ekki yrði við bjargað. Ég get
ekki séð agnarögn, er réttlæti þá kenningu, að vísindin
sanni, að almennar orsakir (samhverf fyrirbrigði) ráði í
viðskiptum manna yfir afleiðingum athafna einstakling-
anna (ósamhverfum fyrirbrigðum). Það er satt, að ekki
er á nokkurn hátt unnt að sanna, að viðskipti manna
ákvarðist í eðli sínu af samhverfum fyrirbrigðum. Það
eitt, að ósamhverf fyrirbrigði eru til, útilokar nálega, að
slík sönnun geti átt sér stað. Hinni rangsnúnu áherzlu,
sem lögð hefir verið á samhverf fyrirbrigði í viðskiptum
manna, og trausti á svonefndum vísindaaðferðum má að
miklu leyti kenna óskammfeilni nokkurra síðustu áratug-
anna.
Sú heimspeki, sem virðist hafa gert Þjóðverja svo óð-
fúsa til árása, er talin byggð á vísindalegri raunhyggju.
Nálega hvaða siðfræði eða siðleysi sem er gæti vitnað í
rit Nietzsche sér til stuðnings, svo ósamkvæm eru þau
hvert öðru. En kenningar hans, sem eiga að vera byggðar
á lögmálum náttúruvalsins, hafa í Þýzkalandi leitt til þess
að tigna villimannlegan kraft og útrýma samúð, ást, um-
burðarlyndi og öllum óeigingjörnum tilfinningum.
En Darwin sjálfur viðurkenndi, að hin æðri þróun
mannkynsins í félagsmálum, siðgæði og andlegum efnum
væri lífinu til viðhalds. í þetta er stundum lauslega vitnað
og kallað lögmálið um það, að hið hæfasta haldi lífi. En
hugtakið hæfur virðist þó í eðli sínu heldur loðið. Þeir
einstaklingar virðast hæfastir, sem gæddir eru þeim eig-
inleikum, er gera það líklegra að þeir haldi lífi. Oft má
heyra raunhyggjumenn harma afleiðingar mannúðarinn-
ar, sem hættir til að halda því lifandi, sem óhæft er. Oss