Skírnir - 01.01.1943, Blaðsíða 31
Skírnir
Goðorð í Rangárþingi
29
gerð bókarinnar og verður að teljast áreiðanleg, því að
hún mun sett þar af samtíðarmanni, líklega Ara fróða.12)
Þrír menn eru nefndir á elleftu öld, sem báru nafnið
Kolbeinn Flosason. í Þorsteins sögu Síðu-Hallssonar er
getið Kolbeins, sonar Flosa Þórðarsonar og Óláfar systur
Halls á Síðu.13) Eftir aldri afa hans, Þórðar Freysgoða,
og föður hans, Brennu-Flosa, að dæma, hlýtur þessi Kol-
beinn að hafa verið fæddur nokkuð löngu fyrir aldamótin
1000. Hann hefir því annað hvort verið dauður eða mjög
aldurhniginn um 1066, sem er það lögsögumannstímabil,
er hér ræðir um. Hann getur því ekki hafa verið lögsögu-
maður. Annar Kolbeinn Flosason er nefndur í Njálu og
talinn sonur Flosa Kárasonar, Sölmundarsonar, og Gunn-
hildar, og einhver ágætasti maður í þeirri ætt. Ef þessi
maður er ekki tilbúningur Njálu, er hann í öllu falli of
ungur til þess að koma til greina við lögsögumannskjör á
því tímabili. Þriðji Kolbeinn Flosason er sá, sem Land-
náma getur um af Valla-Brands ætt, tengdafaðir Sæmund-
ar fróða. I Þorsteins þætti stangarhöggs er þess getið, að
Guðríður, dóttir Bjarna Broddhelgasonar, hafi verið gift
Kolbeini lögsögumanni Flosasyni.14) Tímatalsins vegna er
þetta varla rétt, og hefir Guðríður annað hvort verið dótt-
urdóttir Bjarna, eða verið kona Flosa Valla-Brandssonar
og móðir Kolbeins lögsögumanns. Það er eftirtektavert,
að sonur Flosa og bróðir Kolbeins heitir Bjarni. En hvern-
ig sem þessu annars er varið, hefir það verið þessi Kol-
beinn Flosason, sem Ari segir í íslendingabók að hafi
verið lögsögumaður frá 1066 til 1071. Aldur hans kemur
heim við tímatalið.15)
Hinn parturinn af Hvítanesgoðorði, sem sé sá partur,
sem Höskuldur átti, hyggur Barði, hafi gengið í ætt
Brennu-Flosa og loksins komizt í eign Oddaverja, þegar
Filippus Sæmundsson á Hvoli kvongaðist Þórdísi Flosa-
dóttur, sem Barði telur af ætt Brennu-Flosa, og hann get-
ur þess til, að það hafi verið þetta goðorð, sem Filippus
gaf í hendur Hákoni konungi 1250, jafnframt því sem
Haraldur Sæmundsson hafi fengið konungi Hofverjagoð-