Skírnir - 01.01.1943, Blaðsíða 117
Skírnir
Ræðismenn
115
og ósamboðið henni. Enn fellur umboðið niður, ef ófriður
hefst á milli sendiríkis og viðtökuríkis. Hitt er vafamál,
hvort umboð ræðismanns fellur niður, ef landsvæði það,
sem er starfssvið hans, skiptir um eiganda; en svo er litið
á af flestum, að umboðið falli niður vegna þess að það er
veitt af umbjóðanda, sem eigi ræður lengur yfir svæðinu.
Ef ákveðið svæði hefir verið hernumið án þess að vera
innlimað, gilda aðrar reglur. I síðustu heimsstyrjöld kröfð-
ust t. d. Þjóðverjar, að ræðismenn hlutlausra ríkja í hin-
um hernumda hluta Belgíu legðu niður störf sín, þar sem
Þýzkaland væri ekki bundið af umboðum, er Belgíustjórn
hefði gefið. Belgíustjórn mótmælti þessu, en Bandaríkin
lýstu því yfir, að þau teldu heimilt að telja, að framkvæmd
ræðismannsstarfanna væri frestað. í slíkum tilvikum sem
þessu mun mega álíta, að umboð verði gilt á ný, er her-
náminu er lokið og á kemst status quo. Við þjóðhöfðingja-
skipti fellur umboð diplomatiskra fulltrúa niður, en svo
er eigi um umboð ræðismanna. Að þjóðarétti hafa þjóð-
höfðingjaskipti engin áhrif á umboð þeirra.
Þrátt fyrir hina opinberu stöðu ræðismanna eiga þeir
ekki rétt á að hafa bein skipti við stjórnarvöld viðtökurík-
isins. Slík skipti verða að fara um skrifstofu sendiráðs.
Ef hins vegar ekkert sendiráð er í hlutaðeigandi ríki, vík-
ur málinu öðruvísi við. Þá er ræðismaðurinn eini opinberi
fulltrúinn frá sendiríkinu. Þegar svo er, er venjulega
samið um að ræðismanni skuli heimilt að snúa sér til
stjórnarvaldanna í öllum löglegum erindum, sem hann
kann að eiga við þau. Svo var t. d., er aðalræðismaður ís-
lands í New York var einasti opinberi fulltrúi Islands í
Bandaríkjunum. Varð þá samkomulag um að hann gæti,
hvenær sem hann þyrfti, snúið sér til utanríkisráðherra
Bandaríkjanna með þau erindi, er honum var falið af Is-
lands hálfu að vinna að. Annars er það hlutverk sendiráð-
anna að bera upp mál við hlutaðeigandi ríkisstjórnir, en
ræðismenn hafa nær eingöngu skipti við yfirvöld þess
staðar eða svæðis, sem verksvið þeirra nær yfir.
Að þjóðarétti eru diplomatiskum fulltrúum veitt ýmis
8*