Skírnir - 01.01.1943, Blaðsíða 112
110
Agnar Kl. Jónsson
Skírnir
til að leysa deilumálin, og voru menn þessir nefndir kon-
súlar. Var þetta gert samkvæmt þeim reglum, sem á þeim
tímum var fylgt, um að einstaklingar skyldu háðir þeim
lögum og rétti, er gilti í heimalandi þeirra. Þetta er upp-
haf ræðismanna og starfa þeirra, sem þeir inntu af hendi.
Hin fyrstu og upprunalegu störf þeirra voru því dómstörf.
Þegar fram í sótti, óx verksvið og vald ræðismanna, unz
það náði yfir bæði einkamál og opinber mál, svo og líf og
eignir landa þeirra. Jafnframt tóku fleiri og fleiri lönd
upp þetta fyrirkomulag með ræðismennina. Hansakaup-
menn notuðu það, og höfðu ræðismenn þeirra sams konar
vald og stéttarbræður þeirra við Miðjarðarhafið. Þegar
ríki hófu diplomatiskt samband sín á milli og stofnuðu
sendiherraembætti, er varð nokkru síðar en ræðismanns-
störfin hófust, breyttist valdsvið ræðismannanna, og svo
fór á sautjándu og átjándu öldinni, að störf ræðismanna
voru lítið annað en eftirlit með siglingum og verzlun, svo
og fyrirgreiðslur í sambandi við þetta hvorttveggja. Þegar
siglingar jukust á nítjándu öldinni og verzlun og viðskipti
tóku ört að vaxa, opnuðust augu manna fyrir gagnsemi
ræðismannsskrifstofa, og tóku þær þá smátt og smátt að
færast í þá mynd, sem þær eru í nú á tímum. Störf ræðis-
manna eru orðin æði margvísleg og fjölbreytt, en samt er
það svo, að þýðingarmestu eða aðalstörfin eru enn hin
sömu og áður, að gæta hagsmuna heimaþjóðarinnar í öllu,
er lýtur að utanríkisverzlun hennar og siglingum.
Ræðismenn (og þegar hér eftir verður talað um ræðis-
menn, er átt við þá almennt, án tillits til skiptingar þeirra
í flokka eftir tign eða öðruvísi) skiptast í tvo aðalflokka,
eftir því hvort þeir eru sendir frá heimalandinu og taka
laun fyrir starf sitt eins og aðrir starfsmenn ríkisins (út-
sendir ræðismenn, consules missi), eða eru kjörnir meðal
fastbúsettra manna á staðnum, þar sem þeir eiga að vinna
starf sitt, og þiggja ekki laun fyrir það (kjörræðismenn,
consules electi). Hinir fyrrnefndu eru alltaf ríkisborgarar
heimalandsins og hafa starfið sem aðalstarf, enda eru þeir
starfsmenn utanríkisráðuneytisins í heimalandi sínu (car-