Skírnir - 01.01.1943, Blaðsíða 155
Skírnir
Davíð konungur
153
an Jórdan. Eru báðir miklir. Amasa systursonur Davíðs
er fyrir her Absalóms, en Jóab stýrir her Davíðs. Hugðist
Davíð að gera það sjálfur, en liðið bað hann þess mjög að
leggja ekki líf sitt í hættu, „því að þú ert sem tíu þúsundir
af oss“. Varð hann við þeirri ósk, en bað þess, að svein-
inum Absalóm yrði hlíft. Orusta verður hörð, er flokkun-
um lýstur saman, en brátt brestur flótti í lið Absalóms,
og vegur Jóab hann eigin hendi. Þegar Davíð fær fregn-
ina, gengur hann grátandi upp í þaksalinn yfir borgar-
hliðinu og kveinar hástöfum: „Sonur minn Absalóm, sonur
minn, sonur minn Absalóm. Ó að ég hefði dáið í þinn stað,
Absalóm, sonur minn, sonur minn“. Slær þá fölva á sigur-
gleði hersins, og menn læðast inn í borgina eins og þeir
komi af flótta. En nú er Jóab nóg boðið. Hann hraðar sér
inn til konungs og mælir: „Þú hefir í dag gert opinbera
hneisu öllum þjónum þínum, sem í dag hafa frelsað líf
þitt, líf sona þinna og dætra, líf kvenna þinna og hjá-
kvenna, með því að sýna þeim elsku, er hata þig, og hatur
þeim, er elska þig; því að í dag hefir þú sýnt, að þú átt
enga hershöfðingja eða þjóna — því að nú veit ég, að væri
Absalóm á lífi og vér nú allir dauðir, þá myndi þér það
vel líka. Rís því nú upp, gakk út og tala vinsamlega við
þjóna þína, því að það sver ég við Jahve, að gangir þú
ekki út, mun ekki einn maður eftir verða í nótt með þér,
og er þér það verra en öll ógæfa, er yfir þig hefir komið
frá barnæsku þinni og fram á þennan dag“. Þá stóð kon-
ungur upp og settist í borgarhliðið. En þessari kúgun var
erfitt að gleyma.
Heimför Davíðs til Jerúsalem var sigurför. Hann þakk-
ar liðveizlu við sig og er mildur þeim, er höfðu sýnt hon-
um fjandskap. M. a. vinnur hann Símeí Gerassyni eið að
því, að hann skuli ekki deyða hann. Amasa gerir hann að
yfirforingja sínum í stað Jóabs. Þó er hættan engan veg-'
inn liðin hjá. Ósætt verður milli norðurkynkvísla, ísraels,
og Júda. Uppreisnin gegn Davíð heldur áfram undir for-
ystu Seba Bíkrísonar af Benjamínsættkvísl. Ríkið virðist
ætla að klofna í tvennt. Amasa verður of seinn til að bæla