Skírnir - 01.01.1943, Blaðsíða 141
Skírnir
Davíð konungur
139
menna sinna árið 1014. Á leiðinni þangað kemur hann við
í þorpinu Nób og þiggur af höfuðprestinum þar vistir og
vopn. En Sál reiðist svo prestunum í Nób fyrir það, að
hann lætur drepa þá alla, nema Abjatar einn fékk forðað
sér og náð fundi Davíðs. Ekkert annað en flóttinn og
fylgsni Júdafjalla megna að frelsa Davíð úr greipum hins
ofsóknaróða manns. í þessum nauðum þrýtur hann þó ekki
kjark. Nokkurt lið drífur að honum, nauðleytamenn og
vinir, og í þeim flokki fáeinar afburðahetjur. Hann leitast
við að sameina Júda og fleiri suðurkynkvíslarnar og ger-
ast sjálfur höfðingi yfir. Hann ver hjarðir manna suður
þar fyrir ránum, en krefst jafnframt að launum nokkurs
af hjörðunum handa mönnum sínum, og tregðist einhver
að gjalda, þá hikar hann ekki við að afla vista með harð-
fengi. Þó kemur lítt til þess, því að hann gengur að eiga
þar tvær konur af góðum ættum og vel efnum búnar, svo
að honum verður ekki vista fátt um hríð. En að 2 árum
liðnum verður hann þó að hrökklast burt úr Júda. Veldur
einkum tvennt. Lið hans er orðið 600 manns, og hlýtur
hann að fara að ránum til þess að ala önn fyrir því. Það
vill hann ekki í Júda, því að þá er vonlaust um yfirráð
þar nokkurn tíma. Hins vegar eru njósnarar Sáls á hæl-
um honum, og vald hans nær suður þangað, svo að líf
Davíðs er í stöðugri hættu. Ræður hann það því af að fara
með flokk sinn til Akís Filistakonungs í Gat og bjóða hon-
um þjónustu sína. Það var örþrifaráð og sýnir bezt, hversu
Davíð er að þrengdur. Hann gengur á hönd erkifjendum
sinnar eigin þjóðar. Og hver von gat þá framar orðið til
þess, að hann yrði höfðingi í Júda, hvað þá yfir öllum
Israel? En framkoma Davíðs í Filistalandi sýnir, að enn
hefir hann ekki sleppt allri von í þessum efnum. Honum
tekst að afla sér trausts og vinfengis Akís konungs, og
fær konungur honum bústað í Ziklag-þorpi suður við Júda
og felur honum landvarnir^ En Davíð ræðst þaðan á ræn-
ingjaþjóðir, sem veitt höfðu Júda þungar búsifjar, og nær
frá þeim miklu herfangi, afhendir síðan Akís konungi og
kveður vera frá Júdamönnum. Þannig leikur hann um hríð