Skírnir - 01.01.1943, Blaðsíða 127
Skírnir
Frá Austurlöndum
125
voldugu aðalsættum. Litlar breytingar urðu á atvinnu- og
menningarlífi þjóðarinnar, þangað til hin mikla bylting
varð 1868.
Skömmu eftir að fundin var sjóleiðin til Indlands, tóku
Evrópumenn að reka verzlun við Japana og þangað
streymdu trúboðar. Gekk þetta allt vel um hríð. Margir
Japanar tóku kristna trú og öll viðskipti fóru friðsamlega
fram, en skyndilega breyttist veður í lofti.
Ýmsir trúboðar, einkum frá Spáni, gengu svo ógætilega
að starfi sínu, að þeir brenndu hof og brutu líkneski og
reyndu jafnvel að koma á stað uppreisn gegn stjórninni,
og yfirleitt má segja, að þeir blönduðu sér á allan hátt í
innanríkismálefni Japana. Þetta leiddi til þess, að keisar-
inn bannaði starfsemi þeirra árið 1593 og lét reka suma
úr landi, en sumir voru brenndir. Árið 1614 var enn hert
á þessu og auk þess hafin ofsókn gegn Japönum, er kristni
höfðu tekið. Var hún engu vægari en hinar grimmustu of-
sóknir rómversku keisaranna. Kristninni var algerlega út-
rýmt og jafnframt var landinu lokað fyrir öllum hvítum
mönnum. Öll áhrif frá Evrópu liðu undir lok í Japan.
Þessi lokun stóð í hálfa þriðju öld, og auðvitað leiddi
hún til þess, að menning Japana hefir orðið allmjög frá-
brugðin því, sem tíðkast hjá öðrum fjölmennum þjóðum.
Þeir halda líka fast við siði sína og lífsskoðanir, hvar sem
þeir eru staddir. Þó að þeir semji sig að háttum hvítra
manna, meðan þeir dvelja meðal þeirra, þá er sú siða-
breyting aðeins á yfirborðinu — hjúpur, sem þeir kasta
fljótt af sér, er þeir hverfa heim aftur.
Þessi innilokunarpólitík hefir haft ýmislegt gott í för
með sér. Hún hefir gert þjóðina óvenjulega samhenta.
Japanar finna, að þeir eru öllum öðrum þjóðum ólíkir, og
eiga ekki samleið með neinni þeirra, nema um stundar-
sakir. Þeir hafa vanizt á að líta með fyrirlitning á útlend-
inga. Trúarbrögðin hafa jafnan verið mikilvægur þáttur
í lífi hverrar þjóðar. Það verður ekki sagt um Japana, að
þeir séu trúmenn miklir, að minnsta kosti ekki kirkjunnar
menn.Ýmsar sérgreinar af Búddhatrú eru aðaltrúarbrögð-