Skírnir - 01.01.1943, Blaðsíða 176
174
Jakob Jónsson
Skírnir
þjóðfélagsins og hins veraldlega valds, sem kemur til
greina í þessu sambandi. Við athugun íslenzkrar prédik-
unar síðustu 100 árin kemur í ljós, að þarna kennir nokk-
urra breytinga, sem auðvitað fylgjast alveg með breyttum
skilningi á orsökum misréttarins. Framan af er, eins og
ég sagði áðan, aðallega litið á einstaklinginn og hans fram-
ferði sem orsakir meinsemdanna. Dugnaðarleysi fátækl-
ingsins, ágirnd auðmannsins o. s. frv. Eðlilega verða því
umbæturnar miðaðar við þetta. Því segir Pétur biskup:
„Þó má í vissu tilliti svo að orði kveða, að sá mikli mis-
munur, sem er á háum og lágum, ríkum og fátækum, verði
þegar hér í lífi nokkuð minnkaður fyrir eðallyndi og mann-
elsku hinna ríku og fyrir iðjusemi og þolinmæði hinna fá-
tæku, en um frarri allt fyrir það kristilega hugarfar, sem
aptrar hjarta mannsins frá að festast of mjög við hið jarð-
neska og gerir sérhvern ánægðan með sitt hlutskipti“.33)
Það eina, sem þarna er raunverulega hægt að gera til
breytinga, auk algengrar vinnu, er að iðka góðgerðastarf-
semi. Á almenna hjálpsemi er jafnan lögð mikil áherzla í
prédikuninni. En ræðumönnunum er það ljóst, að góð-
gerðastarfið er ekki úrslitalausn á málinu. Bæði Helgi
biskup og Pétur benda á, hve erfitt sé að láta hjálpina
koma niður, þar sem mest er þörf og verðskuldun. Samt
sem áður verður hún eina úrræði hinna eldri tíma. En
þegar fram á líður kemur hið þjóðfélagslega viðhorf til
sögunnar jafnframt, og sú hugmynd vaknar, að eitthvað
sé hægt að gera til umbóta með breyttri löggjöf og skipu-
lagi. Þá er líka kominn annar skilningur á hinu ytra valdi,
sem beitt er í nafni þjóðfélagsins, heldur en áður var.
Helgi biskup Thordersen áminnir söfnuð sinn með þessum
orðum: „Vertu ekki of réttlátur". Réttlæti borgaralegra
laga nær ekki guðs réttlæti.Það má því ekki leggja of mik-
ið upp úr lagafyrirmælum.34) Bæði Pétur biskup og Helgi
Hálfdanarson og Jón biskup leggja aftur megináherzluna
á það, að hið ytra vald haldi uppi réttlæti og góðri reglu,
en refsi misendismönnum og stemmi stigu fyrir glæpum.35)
Þess vegna eigi kristnir menn að sýna hinu ytra valdi