Skírnir - 01.01.1943, Blaðsíða 149
Skírnir
Davíð konungur
147
insins að setjast að þeim um daga né dýrum merkurinnar
um nætur. Hugðist hún svo að milda hlutskipti þeirra í
dánarheimum. Allt sumarið og fram á haust varð móðir-
in að heyja þessa baráttu. Þá fyrst lét Davíð jarða beinin.
Hefir honum þótt óráðlegt, að vinum Sáls bærust öllu leng-
ur fregnir af því, er gerðist dag og nótt uppi á fjalli þeirra
Gíbeoníta.
Stríð Davíðs við nágrannaríkin mun standa samfleytt
í 15 ár. Er óvíst, að hann hafi átt alls staðar upptökin.
A. m. k. er fullvíst, að Filistar réðu á hann að fyrra
bragði, og svo kann einnig að hafa orðið um aðra. Þeim
hefir þótt uppgangur hans mjög hættulegur, og var þá
vænlegra að bíða þess ekki, að hann yrði of voldugur. En
enginn af herkonungum þessara þjóða komst í hálfkvisti
við Davíð. Hann bar ægishjálm yfir þá alla að herkænsku
og hreysti, og svo vinsæll var hann af stríðshetjum sínum
og öðrum liðsmönnum, að þeir hikuðu aldrei að leggja líf
sitt í hættu fyrir hann. Virðist sambúðin í milli í stríði
hafa verið svo ástúðleg sem fremst varð kosið. Á það
bendir t. d. sagan um það, er menn hans hætta lífi sínu til
þess að sækja honum svaladrykk, en þegar hann veit það,
vill hann ekki drekka. Það er of dýr drykkur, sem vel
mátti kosta blóð kappa hans. Hann færir Jahve hann að
dreypifórn. — Um þessa styrjöld fara heimildirnar ekki
mörgum orðum, en alls staðar lýkur henni með sigri Davíðs
eða Jóabs herforingja hans. Og her hans verður sífellt
stærri og stærri.Frá viðskiptum hans við nágrannaþjóðina
í vestri, Filista, er áður sagt. Hann nær nokkru af landi
þeirra og gerir skattskylt sér. Og þótt merkilegt sé, velur
Davíð lífvörð sinn úr flokki þeirra, og reyndust engir hon-
um trúrri. Næst getur stríðs hans við Móabíta. Rækti hann
lítt frændsemi við þá, heldur lét kné fylgja kviði. Segir,
að hann hafi mælt þá með vað, þ. e. a. s. hann lét þá leggj-
ast niður á jörðina og mældi tvo vaði til lífláts og eina
vaðlengd til að halda lífi. Var þá viðnámsþróttur þeirra
brotinn á bak aftur, og gerðust þeir skattskyldir honum.
Fyrir norðan Móab bjuggu Ammónítar austan Jórdanar.
10*