Skírnir - 01.01.1943, Blaðsíða 81
Skírnir
Vísindi, heilbrigð skynsemi og velsæmi
79
er jafnvel sagt, að endurskoða megi rás þróunarinnar á
þennan hátt. Lík rök mætti færa fram gegn skurðlæknin-
um, sem tekur burtu botnlanga, eða lækninum, sem notar
sulfa-meðal til þess að lækna lungnabólgu.
En hvaða þörf er á því að klekja út kyni, sem ónæmt er
fyrir botnlangabólgu eða lungnabólgu, ef vér eigum meðal
til að hindra illar afleiðingar þeirra? Þau einkenni, er
gera menn hæfa, breytast aðeins. í stað ónæmisins kemur
það, er gerir menn hæfa til að sjá sér fyrir góðri læknis-
hjálp.
Komandi sigur hinna sameinuðu þjóða mun sanna, að
hindra má viðhald þjóðar með ofbeldisanda, löngun til að
leggja undir sig heiminn eða hneppa hann í þrældóm, eða
með ófrjálslyndi, miskunnarleysi og grimmd. f rauninni
eru engin vísindaleg rök til þess, að velsæmi og siðgæði
kunni ekki að reynast margfalt máttugri til viðhalds líf-
inu en villimannlegur kraftur.
Þó að vér getum ekki framar réttlætt trúna á algert
orsakasamband og verðum að viðurkenna, hve mikils ósam-
hverf fyrirbrigði mega sín í mannlegu lífi, þá verðum vér
þó að fást við orsakir og afleiðingar. Vér verðum, þrátt
fyrir allt, að gera áætlanir um framtíðina. En vér getum
gert það með því að meta líkurnar, jafnvel þar sem vér
trúum ekki á óskeikulan árangur. Þegar amerískur her
lendir í Norður-Afríku, þá fara líkurnar fyrir sigri hans
eftir því, hve vel hefir verið vandað til undirbúningsins
og hve góð herstjórnin er. En hve mikil sem fyrirhyggjan
er, þá getur hún ekki gert sigurinn algerlega vísan.
Mér virðist það ekki þurfa að draga kjarkinn úr oss,
þó að vísindin geti ekki leyst öll vandamál, jafnvel í fjar-
lægri framtíð. Mér finnst ekkert að því að viðurkenna, að
verksvið vísindanna sé takmarkað. f öngþveiti lífsins verð-
um vér að leysa úr mörgum vafamálum og taka margar
ákvarðanir. Það er fjarstæða að halda, að rökhugsun ætti
ávallt að vera leiðtogi vor. Rökhugsun er of sein í svifum
og of erfið. Oss vantar oft nauðsynleg gögn, eða vér get-
um ekki gert viðfangsefnið nógu einfalt til þess að koma