Skírnir - 01.01.1943, Blaðsíða 114
112
Agnar Kl. Jónsson
Skírnir
landshluta, eða jafnvel einungis eina borg. Þeir mega þá
ekki framkvæma ræðismannsstörf utan síns starfssvæðis.
Auk áðurnefndrar aðalskiptingar er ræðismönnum,
jafnt útsendum sem kjörnum, skipt í tvo flokka eftir tign
og eru aðalræðismenn (Consul General) æðstir; þá koma
ræðismenn (Consul), vararæðismenn (Vice Consul) og
umboðsmenn (Consular Agent). Aðalræðismenn eru ann-
aðhvort skipaðir yfir mörg ræðismannssvæði, en þeim er
aftur stjórnað af ræðismönnum eða vararæðismönnum,
eða þeir eru skipaðir yfir eitt og þá venjulega nokkuð
stórt og þýðingarmikið svæði. Ræðismenn eru skipaðir
yfir minni svæði, t. d. eitt hérað eða fylki, eða þá yfir
eina borg (hafnarborg). Vararæðismenn eru líka skipaðir
yfir ákveðin svæði eða bæi, sem eru venjulega þýðingar-
minni en þau, sem ræðismenn eru skipaðir yfir. Auk þess
eru ræðismenn og vararæðismenn skipaðir til aðstoðar
aðalræðismönnum á skrifstofum þeirra, og vararæðismenn
á sama hátt skipaðir til aðstoðar ræðismönnum.
Ræðismaður getur fengið persónulegt heiti sem aðal-
ræðismaður, í heiðursskyni, en skrifstofa hans heldur
engu að síður áfram að vera ræðismannsskrifstofa, og
vararæðismaður getur á sama hátt notið þess persónulega
heiðurs að heita ræðismaður, þótt hann sé fyrir vara-
ræðismannsskrifstofu.
Umboðsmennirnir eru venjulega tilnefndir af aðalræðis-
manninum eða af ræðismanni, að tilskyldu samþykki utan-
ríkisráðuneytis sendiríkisins, til að gegna tilteknum minni
háttar störfum innan ákveðins landsvæðis eða bæjar. Þeir
lúta þeim ræðismönnum, sem hafa skipað þá, og bréfa-
skipti þeirra eru eingöngu við þá, en ekki við utanríkis-
ráðuneyti sendiríkisins eins og bréfaskipti annarra ræðis-
manna.
Sé sendiherra í ríki þar sem ræðismenn eru, lúta ræðis-
menn yfirráðum hans; ber þeim að framkvæma fyrirskip-
anir, sem þeim kunna að berast frá honum. Sömuleiðis
geta þeir alltaf leitað leiðbeininga hjá honum og ráða í
vafaatriðum.