Skírnir - 01.01.1943, Blaðsíða 116
114
Agnar Kl. Jónsson
Skírnir
sem jafnframt er skipunarbréf hans (lettre de provision,
commission), og kemur sendiherra sendiríkisins því á
framfæri við utanríkisráðherra í viðtökuríkinu, en hann
afhendir það þjóðhöfðingjanum. Þegar umboðsskjalið
hefir verið athugað og ekkert athugavert fundið við skip-
un ræðismannsins, sendir þjóðhöfðinginn sömu leið til
baka skjal, er nefnist exequatur (úr latínu exsequor), og
felst í því viðurkenning á ræðismanninum sem slíkum og
heimild honum til handa til að gegna skyldustörfum sín-
um í samræmi við þjóðréttarreglur og landslög. Þegar
ræðismaður hefir fengið þessa formlegu viðurkenningu,
er honum heimilt að taka til starfa. Ekkert er því til fyrir-
stöðu, að ræðismaður fái bráðabirgðaviðurkenningu þar
til hægt er að veita honum fullnaðarviðurkenningu.
Ef ræðismaður sá, er taka á við ræðismannsstarfi, ein-
hverra hluta vegna er ekki geðfelldur viðtökuríkinu, get-
ur það synjað honum um viðurkenningu. Verður þá að
velja annan mann í hans stað. Um diplomatiska fulltrúa
er alltaf fylgt þeirri reglu að spyrjast fyrir um, hvort
maður sá, er skipa skal, sé geðfelldur viðtökuríkinu, og er
rétt að viðhafa þá aðferð líka, er ræðismenn eru skipað-
ir, að minnsta kosti um aðalræðismenn, því að með því
móti verður komið í veg fyrir þau leiðindi, sem alltaf
hljóta að leiða af synjun. Þess má geta hér, að ríkisstjórn
íslands hefir fylgt þessari reglu gagnvart stjórn Banda-
ríkjanna, að því er snerti skipun aðalræðismanna í New
York, en um aðra útsenda ræðismenn af íslands hálfu er
ekki að ræða enn sem komið er.
Starf ræðismanna getur fallið niður með ýmsu móti.
Það verður að sjálfsögðu, er ræðismaður andast í embætti,
eða starfið er lagt niður. í öðru lagi, ef ræðismanni er
vikið frá starfi, eða hann er afturkallaður af sendiríkinu,
eða ef viðtökuríkið afturkallar umboðið t. d. vegna fram-
komu hans eða af öðrum ástæðum. Ræðismanni er t. d.
alveg óheimilt að skipta sér af innanríkismálum viðtöku-
ríkis, stunda njósnir eða áróður. Slíkt er misnotkun á
stöðu hans, auk þess sem það er algerlega ósamrýmanlegt