Skírnir - 01.01.1943, Blaðsíða 120
118
Agnar Kl. Jónsson
Skírnir
verða nokkuð misjafnar að gæðum, en því betur, sem vand-
að er til þeirra, því meira gagn má verða að þeim. Ríkis-
stjórnin sendir skýrslurnar til þeirra aðila, sem þær skipta
mestu máli fyrir, eins og t. d. verzlunarráða, og þau dreifa
þeim svo meðal einstaklinganna í verzlunarstétt. Dæmi
eru þess, að ræðismannsskýrslur hafi orðið til þess að ný
iðnaðarfyrirtæki hafi risið upp. Til gamans má geta þess,
að Coca Cola drykkurinn, sem vel má segja að sé þjóðar-
drykkur í Bandaríkjunum og nú einnig hefir borizt hing-
að til lands, er iðnaður, sem fram er kominn vegna skýrslu-
gjafar amerísks ræðismanns. Þar sem þessi maður gegndi
starfi sínu veitti hann því athygli, að íbúarnir drukku
stundum safann úr rótarávexti einum, og virtist safinn
hafa hressandi áhrif á þá, sem neyttu hans. Hann sendi
heim skýrslu um málið, og iðnaðarfyrirtæki eitt fékk
áhuga fyrir málinu. Lét það framkvæma rannsóknir á
rótarávextinum, og árangurinn af rannsókninni varð Coca
Cola drykkurinn.
Þegar ræðismaður gefur skýrslur sínar, verður hann
að hafa margt í huga, og erfitt er að setja reglur um, hvers
konar skýrslur skuli gefa. Slíkt fer eftir staðháttum öll-
um, sambandi ríkjanna og atvinnuvegum, framleiðslu-
möguleikum og mörgu öðru. Af málefnum, sem almenna
þýðingu hafa, má nefna ýmsar ráðstafanir ríkisvaldsins
í fjárhagslegum málefnum, eins og skatta -og tollalöggjöf,
innflutnings- og útflutningshöft og bönn, útflutningsverð-
laun, upprunaskírteini, vöruskrár, heilbrigðisvottorð með
vörum og margt annað. Skýrslur um öll þessi efni hafa
alltaf mikla þýðingu.
Aðalsjónarmiðið við skýrslugjafirnar verður það, hvort
ætla megi, að málið sé þannig vaxið, að það hafi þýðingu
fyrir sendiríkið. Þess má og geta, að það hefir ekki ein-
göngu þýðingu, að skrifað sé um þær ráðstafanir, sem
þegar eru komnar til framkvæmda, heldur hefir það einn-
ig og engu síður þýðingu, að upplýsingar séu gefnar um
framkvæmdir, sem fyrirhugaðar eru. Þær geta verið þess
eðlis, að þær séu óheppilegar fyrir sendiríkið, og getur