Skírnir - 01.01.1943, Blaðsíða 69
Skírnir Vísindi, heilbrigð skynsemi og velsæmi 67
ákveðin af nákvæmum samböndum orsakar og afleiðingar.
Ef staða, hraði og mæld (mass) himintungls var ákveðin,
þá mátti segja fyrir með nálega ótakmarkaðri nákvæmni
stöðu þess hvenær er vera skyldi í framtíðinni. Hugmynd-
in um orsakasamband eða nauðbundið samband orsakar
og afleiðingar hefir lengi verið rótgróin í hugum manna.
Hin viðurkennda ábyrgð sakamanns á athöfnum sínum,
trúin á gildi uppeldisins og þusundir orða í máli voru
votta, hve blint vér trúum á orsakir og afleiðingar. Kenn-
ingar náttúruvísindanna fram til 1900 virðast allar styrkja
þessa trú á það, að öll fyrirbrigði séu orsökum bundin.
Heimspekingar, er taka til greina margt annað en nátt-
úruvísindin, voru skiptir í skoðunum sínum. Margir fóru
svo langt að trúa því, að allt væri nauðbundið af upphaf-
legu ástandi alheimsins. Aðrir héldu, að samband orsaka
og afleiðingar væri ímyndun ein.
Hinir fyrri skörungar náttúruvísindanna töldu svið vís-
indanna ótakmarkað. Að fenginni nægri þekkingu, mátti
með vissu segja fyrir öll fyrirbrigði náttúrunnar, jafnvel
mannlegar athafnir. Ampére t. d. hélt því fram, að ef
hann fengi að vita stöður og hraða allra frumeinda í ver-
öldinni, þá væri frá vísindanna sjónarmiði unnt að ákveða
alla framtíðarsögu heimsins. í framkvæmdinni yrði að
vísu ógerlegt að segja hana fyrir, vegna þess, að vér get-
um ekki búizt við að fá hina nauðsynlegu þekkingu til
þess, né tíma til að ljúka svo flóknum reikningum.
Nokkru síðar skýrðu vísindamenn kenninguna um
hreyfingar lofttegunda, en samkvæmt henni eru sam-
eindir (molecules) lofttegundar á hraðri hreyfingu og eru
alltaf að rekast hver á aðra. Þeir fundu þá, að hátterni
lofttegunda varð ekki skilið nema með því, að miða við
meðalhreyfingar allra sameindanna. Hreyfing hverrar
sameindar út af fyrir sig kom í reyndinni ekki til greina.
Þeim lærðist þannig að meta aðferðir hagfræðinnar, er
líftryggingarfélögin beita nú til þess að reikna út líkurnar
um það, hve margir af viðskiptamönnum þeirra muni
deyja innan árs.
5*