Skírnir - 01.01.1943, Blaðsíða 142
140
Ásmundur Guðmundsson
Skírnir
tveim skjöldum og nýtur í senn vináttu Akís og Júda-
manna. Engar minnstu líkur voru til þess, að brögðin
kæmust ekki upp, er til lengdar léti.
Loks rekur að því, er Davíð mun hafa óttazt mest. Akís
konungur kveður hann og menn hans í mikinn hernaðar-
leiðangur með sér gegn Sál og sonum hans og liði þeirra.
Ægilegustu drottinsvik og landráð, ef Davíð hlýðir, og
jafnframt oltnar um koll allar vonir hans um völd og virð-
ingar í hans eigin landi. Svar hans við málaleitun kon-
ungs er tvírætt: „Nú skaltu fá að reyna, hverju þjónn
þinn fær orkað“. En Akís skilur auðvitað sér í hag og
fagnar liðsaukanum. Eflaust hefir Davíð ráðið það við
sig, hvað gera skyldi, er fundum þeirra Sáls bæri saman,
eða hans og Jónatans. Til þess kom þó ekki. Gæfan var
honum hliðholl sem oft fyrr. Þegar konungar Filista voru
komnir inn á Jesreelsléttuna með hersveitir sínar og horfðu
öndverðir gegn ísraelsmönnum, þá könnuðu þeir lið sitt,
og virtust þeim Hebrearnir tortryggilegir undir forystu
Davíðs. Báðu þeir Akís konung að láta þá hverfa aftur,
því að þeir myndu vísir til að berjast gegn sér. Akís kveð-
ur Davíð trúan sér og hans menn, en lætur þó undan hin-
um fyrir eggjan þeirra. Ber hann fram miklar afsakanir
við Davíð og segir hann í sínum augum góðan, sem væri
hann engill Guðs. Davíð kveður sig órétti beittan að mega
ekki berjast við óvini síns herra konungsins. En skipun-
inni hlýðnast hann þegar í stað.
Hann heldur aftur suður til Ziklag, en sækir svo að, að
hún er rænd og brennd. Ránsflokkar Amalekíta hafa neytt
færisins og látið greipar sópa. Þeir hafa einnig haft á
burt með sér allar konur Hebrea og börn. Þeir Davíð veita
þeim eftirför í skyndi, koma að þeim gersamlega óvörum,
höggva þá niður og ná aftur konunum og börnunum og
ógrynni herfangs, bæði frá Filistalandi og Júda. Aðeins
lítill hluti Amalekíta kemst á úlföldum út á eyðimörkina.
En Davíð sendir höfðingjum Júda stórgjafir af herfang-
inu og vingaðist þannig við þá á hentasta tíma fyrir sig,
sem hugsazt gat.