Skírnir - 01.01.1943, Blaðsíða 231
Skýrslur og reikningar
Bókmenntafélagsins árið 1942
Bókaútgáfa.
Arið 1942 gaf félagið út þessi rit, og fengu þau þeir félagsmenn,
sem greiddu hið ákveðna árstillag til félagsins, 18 krónur:
Skírnir, 116. árgangur ......................... kr. 24,00
Annálar 1400—1800, IV., 3.......................— 18,00
Ari fróði, eftir Einar Arnórsson, dr. jur.......— 25,00
Samtals.......kr. 67,00
Enn fremur var gefið út:
Bréfabók Guðbrands biskups Þorlákssonar, 6. hefti; verður það
sent áskriföndum Fornbréfasafnsins, ásamt 7. hefti, lokahefti bréfa-
bókarinnar.
AtSalfundur 1943.
Hann var haldinn fimmtudaginn 17. júní, kl. 9 að kveldi, í
lestrarsal Landsbókasafnsins. Forseti setti fundinn og stakk upp á
herra forstjóra Halldóri Stefánssyni sem fundarstjóra. Var hann
kjörinn með lófataki.
1. Því næst skýrði forseti frá því, hverjir látizt hefðu af félags-
mönnum síðan síðasti aðalfundur var haldinn; þeir eru þessir:
Björgvin Vigfússon, fv. sýslumaður, Efra-Hvoli.
Carl Proppé, verzlunarfulltrúi, Reykjavík.
Guðmundur Davíðsson, hreppstjóri, Hraunum.
Margeir Jónsson, fv. kennari, Ogmundarstöðum.
Páll Lýðsson, hreppstjóri, Hlíð í Gnúpverjahreppi.
Sigfús Kolbeinsson, skipstjóri, Reykjavik.
Þórður Asmundsson, kaupmaður, Akranesi.
Risu fundarmenn allir úr sætum og minntust hinna látnu félags-
manna.
Þá gat forseti þess, að skráðir hefðu verið 53 nýir félagsmenn
síðan síðasti aðalfundur var haldinn.
2. Því næst las forseti upp ársreikning félagsins fyrir síðast-
liðið ár og efnahagsreikning þess við lok þess árs. Höfðu þessir