Skírnir - 01.01.1943, Blaðsíða 179
Skírnir
Auðjir og örbirgð í íslenzkri prédikun
177
máli skipti, sé hugarfar og hugarstefna mannanna. Þetta
hljóti síðan að hafa áhrif á það ytra form, sem félagslíf
mannanna, andleg og veraldleg viðskipti, fái á sig. Þegar
um hinar þrjár meginstefnur í skipulagsmálum er að
ræða, er álit hans það, að samkeppnisstefnan sé jafnt í lífi
þjóðar sem einstaklings sú stefna, er leiði til bölvunar og
niðurdreps. Afleiðingar hennar er ranglæti og stríð. Skoð-
un hans á hinum stefnunum er aftur á móti sú, að grund-
vallarhugsun bæði jafnaðarstefnunnar og samvinnustefn-
unnar í félagsmálunum sé hin sama og í kenningu Krists.
Þetta þýðir auðvitað ekki, að þjóðmálastefna einstaklings-
ins ein út af fyrir sig skipi honum með Kristi eða móti,
heldur að sú hugsjón, sem jafnaðarstefnan og samvinnu-
stefnan berst fyrir, sé hin sama og kristindómsins og
sömuleiðis, að sannarlegt kristilegt hugarfar hljóti að
miða að framkvæmd þess réttlætis, sem þessar stefnur
krefjist.
Að lokum vil ég draga saman fáein atriði um prédikan-
irnar sem heild. Þær hafa sannfært mig um það, að ís-
lenzkir kennimenn hafa á því tímabili, sem hér er um að
ræða, viljað leggja sinn skerf til úrlausnar á vandamálinu
mikla um auð og örbirgð. Kirkjunni hefir stundum verið
brugðið um það, að hún léti sér standa á sama um jarðnesk
viðfangsefni. Um það skal ekki deilt hér, en hinu haldið
fram, að íslenzkir prédikarar síðustu 100 ára eigi þá ásök-
un ekki skilið. Hið jarðneska líf er mikils vert í augum
þeirra allra, ekki sízt fyrir þá sök, að jörðin er áfangi
mannsins á lengri ævi en svo, að séð verði fyrir endann
á henni. Þó hefir kirkjan jafnan haldið fast við það, að
maðurinn lifi ekki á einu saman brauði, og að jafnvel þarf-
ir hlutir séu of dýru verði keyptir, ef maðurinn bíður tjón
á sálu sinni til að afla þeirra.
Ólíkt viðhorf ræðumannanna kemur aðallega fram í
skýringum þeirra á orsökum efnalegrar misskiptingar og
úrræðum til umbóta á högum manna. Frá sjónarmiði nú-
tímans hefir Pétur biskup minnst til brunns að bera. Skýr-
12