Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.04.1912, Side 24

Skírnir - 01.04.1912, Side 24
Síðasti róðarinn. 120 hásuðri, stundum úr vestri, stundum úr norðri. Það fór að verða kalt. Nepjuúða lagði úr þokubakkanum. Veður var ískyggilegt, og ekkert að vita, hvaðan stormurinn kynni að koma. Bárður lagði inn, þegar þeir voru komnir góðan spöl eða fast að hálfri viku sjávar út úr fjarðarmynninu. Hann stóð upp, sneri sér við og horfði um stund fram- undan; skimaði hann í allar áttir, eins og hann væri að gá að einhverju ákveðnu. Því næst tók hann tóbaks- hornið sitt, sem lá hjá stjórnborðskollbarðinum á austur- rúmsþóftunni, tók úr því tappann, barði með honum um stund á hliðina á þvi, og stútaði sig því næst mörgum sinnum úr því. Fór hann sér að engu óðslega, og var auðséð á svip hans, að hann var í vafa um, hvað gera skyldi. Þá tók hann vesti sitt úr stafnlokinu og fór í það, rétti tóbakshornið að Arna og segir: »Fáðu þér í neflð, Arni minn! Hvernig lízt ykkur annars á hann piltar? Mér þykir vera rækals tvíveðr- ungur í honum núna«. Árni lagði inn árarnar, tók við horninu, helti fáein- um kornum á handarbakið og saug upp í nefið, en flest kornin hrundu þó utan hjá, því hann var enginn tóbaks- maður. Rétti hann því næst hornið að Sveini og segir: »Það er vindalda, þessi sjór, það fer ekki hjá þvít Það er áreiðanlega stormur á hafinu. Enn hvort hann leggur hann upp eða ekki, er ekki að vita — — vilt þú ekki, Sveinn?* Sveinn tekur við horninu, stútar sig og réttir því næst Árna aftur með þessum orðum: »Það er norðaustansjór þetta, skal eg segja ykkur, piltar! Mér lízt ekki á hann!» »Nei, það er ekki á að lítast*, segir Bárður um leið og hann sezt aftur undir árar — »væri ekki svona snemma á tima, eins og er, þá held eg að eg sneri nú aftur. En það er víst bezt, að andæfa fram og sjá hann beturt Hann kann víst ekki lakar við það, hann Baldvin, ef eg þekki hann rétt«.

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.