Skírnir - 01.04.1912, Side 13
Skáldspekingurinn Jean Marie Guyau.
109
auðgast að sama skapi sem áhugamál hans vaxa. En
snúum nú að siðfræði Guyau’s.
Það sem alment nefnist skyldutilfinning er i raun og
veru ekki annað en innri máttur, er veldur meira en þvi,
sem af honum er heimtað að öllum jafnaði. Það er ein-
hver innri þensla, er krefst afrenslis. I stað þess því að
segja eins og venjulega.: þú getur, því þú skalt! ætti
fremur að snúa því við og segja: þú skalt, því þúgetur!
Ekki er nein liætta á þvi, að áliti Guyau’s, að orka
þessi og starfsþróttur snúist til eigingirni, ef maðurinn
elst upp við alúð og nærgætni og hjálpfýsi við aðra. En
harkan og ónærgætnin einangrar hugina og kemur þeim
til að leita inn í sjálfa sig, að loka sig inni i hiði sinu.
Þó heldur Guyau, að menn séu ávalt að verða félagslynd-
ari, og að sá tími muni koma, að menn hugsi engu síður
um aðra en sjálfa sig. Og er það göfug bjartsýni.
Mælikvarða sinn á þvi, hvað sé siðferðislega rétt,
á maðurinn að sækja í vitund sjálfs sín með því að gera
hinar háleitustu hugmyndir sinar um mannlegt samfélag
að reglu fyrir breytni sinni. Guyau heldur sem sé fram
þeirri kenningu stjúpföður síns, að hugsjónir manns séu
hugaröfl ((idées-forces)] hugsjónir að því leyti sem þær
leiði manni takmarkið fyrir hugskotssjónir, en öfl að svo
miklu leyti sem þær knýi manninn til framkvæmdar.
Þann einn telur hann því sönnu siðgæði gæddan, sem
ekki hefir hugsjónirnar að tómu munnfleipri, heldur lætur
huga fylgja máli og sýnir þær í verkinu. Sá einn er
siðferðislega heill, en hinir veilir og hálflr. Og svo hygg-
ur Guyau, að æðsta hugsjónin, æðsta siðaboðið sé þetta:
»Þroska þú líf þitt í allar áttir; vertu eins þróttmikill og
víðfeðminn einstaklingur eins og þér er unt, en til þessa
verður þú að vera eins félagslyndur og þér er auðið*.
(Esquisse. 5. útg., bls. 140).
Siðaboð þetta hyggur Guyau að nægi mönnum hvers-
dagslega. En til þess að krefjast hinna miklu fórna af
manninum sér hann engin önnur ráð en að skirskota til
veglyndis hans og þess, hversu hann allajafna hefir gam-