Skírnir - 01.04.1912, Side 91
Frá útlöndum.
187
fjallið nefnir hann Ole Engelsted og er það 18000 fet. Fjóra daga
voru þeir á leiðinni upp eftir þessum fjöllum, komu þá á slétt há'
lendi og tjölduðu á 7600 feta hæð. Þar hóldu þeir kyrru fyrir 4
daga vegna vondra veðra. 25. nóv. héldu þeir á stað aftur, en
urðu næsta dag enn að nema staðar. Þann dag náðu þeir 86. br.st.
og eftir það fór að halla suður af hálendinu.
Jökul einn þar suður frá nefnir Amundsen Djöflajökul. Lögðu
þeir upp á hann 30. nóv. Þá voru þeir á 86. br.st. 81. mín. og
8000 fet yfir sjávarmál. Þar var ilt umferðar, en fagurt umhorfs.
Þar nefnir Amundsen yms fjöll: Helroar Hansens tind, 12000 fetá hæð,
Oscar Wistings, Sverre Hassels og Oscar Bjaalands fjöll og Mont
Thy Nielsen, 15000 fet á hæð. Voru þeir í 3 daga yfir jökulinn,
og kom þá slótta, sem var ill mjög yfirferðar, 9100 fet yfir sjávar-
mál, og gáfu þeir henni nafn og kölluðu Danssal djöfulsins. Þetta
var erfiðasti kafli fararinnar. Mestri hæð náðu þeir 2. des., voru
þá 10,750 fet yfir sjávarmál og á 87. br.st. 40 mín. Nú teptust
þeir af vondu veðri, en hóldu áfram 8. des. Framundan þeim lá
flatneskja, og um kvöldið voru þeir komnir jafn-sunnarlega og
Shakleton komst. Frá 88. br.st. 5. mín. fór landið aftur að smá-
lækka. 9. des. náðu þeir 88. br.st. 39. mín., 10. 88. br.st. 56. min.
11. á 89. br.st. 15. mín. og 13. á 89. br.st. 45. mín. Kvöldið var
fagurt, er þeir settust þá að, hægur vindur á suðaustan og 23. st.
frost. Næsta dag ætluðu þeir að vera á suðurskautinu.
Daginn eftir, 14. des., gekk alt vel. Kl. 3 námu þeir staðar.
Eftir áætlun sinni og útreikningum áttu þeir þá að vera á heims-
skautinu. Þeir tóku upp silkiflagg, er þeir höfðu haft með sér,
reistu það þar á stöng og gáfu því nafn; þeir kölluðu það: Land
Hákonar konungs sjöunda (Kong Haakon den 7endes Land).
Landið er þarna ein geysiflatneskja, tilbreytingarlaus með öllu
á margra mílna svæði. Áður en þeir tóku sór hvíld, fóru þeir ftam
og aftur um svæðið f 18 mílna fjarlægð frá flagginu. Daginn eftir
var veður enn gott. Þá gerðu þeir nákvæmar mælingar. Útkom-
an var: 89. st. 55. mín. suðl. br. Til þess að komast sem næst
heimsskautinu, færðu þeir sig þá 9 kílóm. suður á við. Þar voru þeir
16. des. og var það fagur dagur með sólskinsveðri. Þar gerðu þeir
enn margvíslegar mælingar, er síðar verða lagðar fyrir vísindamenn
f þeim greinum.
Þeir slógu þarna upp litlu tjaldi, sem þeir höfðu haft með sór,
röðuðu kringum það norskum flöggum og meðal þeirra veifunni af
»Fram«. Þessu norska húsi á suðurskautinu gáfu þeir nafnið »PÓ1-