Skírnir - 01.04.1912, Side 31
Nokkrar ath. um isl. bókmentir á 12. og 13. öld. 12T
Hermundar Koðranssonar á Gilsbakka1), því að Styrmir
er nefndur einn sona hans í Laxdælu2). Og þá er Jón
Sigurðsson gaf út Landnámu 184:>, þótti honum einkenni-
legt, að Styrmir var talinn Kárason í lögsögumannatali í
viðauka Melabókar hinnar yngri, því að föðurnafns hans
væri annars hvergi getið3). En síðar hefir komið í ljós,
að Styrmir hinn fróði er talinn Kárason i tveimur öðrum
áreiðanlegum heimildum, þ. e. i máldaga um osttoll til
Viðeyjar, er Jón Sigurðsson heimfærir til c. 12264), og i
lögsögumannatali í Uppsalaeddu frá dögum Snorra Sturlu-
sonar, eða um 1230, að því er talið er5). Það getur þvi
enginn vafi leikið á föðurnafni Styrmis. En framætt hans
hefir hingað til verið óráðin gáta. Hann er svo merkur
maður í fornbókmentum vorum, að það er ekki með öllu
þýðingarlaust að vita ætterni hans með vissu, með því
að það getur orðið til þess að varpa nýju ljósi á starf-
semi hans, eins og síðar mun sýnt að nokkru.
Hin fyrnefnda fullyrðing dr. F. J. varð til þess, að
eg fór að rannsaka þetta efni nánar6) og varð svo hepp-
inn að finna nokkurnveginn fullgilda og óræka sönnun,
að eg ætla, fyrir framætt Styrmis. En sú niðurstaða
kemur i algerðan bága, við staðhæfingu dr. F. J. og sömu-
leiðis við ágizkanir eldri rithöfunda, að því leyti, að
Styrmir hafi verið beinlínis af Gilsbekkingakyni7). En
‘) Sbr. latnesku þýðinguna á Fornmannasögunum X. B. formálann,
bls. XII—XIII, og ættatöfluna nr. III i sama bindi.
s) 78. kap. og verður síðar vikið að því nánar.
“) ísl. sögur (Kli. 1843) I, 338 aths. 4, sbr. Grönl. bist. Mindes-
mærker I, 19.
4) ísl. Fornbréfasafn I, 496.
6) Sama rit I, 500—501.
6) Sú rannsókn, er jafnframt snerist um viðtækara viðfangsefni
(beimildarrit sögu vorrar að fornu og nýju) átti rót sina að rekja til
athugana um einstök lítt rannsökuð atriði í sögu landsins, er eg af viss-
um ástæðum fékkst nokkuð við næstliðið sumar, en þurfti ekki siðar á
að halda. Þeim atbugunum er þessi ritgerð að þakka.
7) Með þvi að móðurætt Styrmis er ókunn, er að vísu ekki óhugs-
andi, að hann bafi verið i þá ættina beinlinis kominn af Gilsbekkingum,
t. d. dótturson Hreins ábóta Styrmissonar, er bezt stæði heima timans