Skírnir - 01.04.1912, Side 43
Nokkrar ath. nm ísl. bókmentir & 12. og 13. öld.
139
vikið að því i hinum ágæta formála fyrir Biskupasögum
I. B. (bls. XXIII), að Styrmir hinn fróði sé líklega höf-
undur íslenzku þýðingarinnar á hinni latnesku sögu Olafs
konungs Tryggvasonar eftir Odd munk á Þingeyrum.
Þetta mun rétt tilgáta, og styrkist enn frekar við það,
sem nú má telja víst, en Guðbrandi var ókunnugt um,
að Styrmir heíir eflaust verið í æsku sinni samtíða Oddi
munk á Þingeyrum á síðustu æfiárum hans. Gunnlaugur
munkur Leifsson samdi einnig sögu á latínu um Olaf
konung Tryggvason, og þeirri sögu hygg eg, að Styrmir
hafi einnig snúið á íslenzku, en nú eru til að eins brot
af þeirri þýðingu. Að þýðing þessi hafi verið gerð á 14.
öld (af Bergi Sokkasyni) hefir dr. F. J. neitað harðlega
og segir, að þýðingin hljóti að vera miklu eldri, með því
að hún hafi legið fyrir þeim, er ritaði A. M. 310 (Olafs
sögu Odds munks) og höfundi Kristnisögu, og þetta sýni
einkanlega, að þýðingin sé ekki miklu yngri en sjáift frum-
ritið1). Eg tel því sennilegt, að það sé einmitt Styrmir,
er snúið hafi á íslenzku báðum OJafssögunum, Odds og
Gunnlaugs, hinni síðari líklega í lifanda lífi Gunnlaugs.
Að Styrmir hafi einnig snúið á íslenzku hinni latnesku
sögu Gunnlaugs um Jón biskup helga2) vil eg hins vegar
ekki fullyrða neitt um, en ekki sé eg neitt því til fyrir-
stöðu, að svo gæti verið. Þýðingin getur vel verið svo
gömul og allur blær sögunnar og orðfæri er alls ekki ólíkt
því, að Styrmir hafi um þá þýðingu fjallað. Því verður
ekki neitað, að Styrmir hefir haft mætur á helgum mönn-
um og helgisögum. Og hvað var þá eðlilegra, en að hann
*) F. J. Lit. Hist. II, 412-413.
s) Að hve miklu leyti ástæða sé til að tala um tvær sérstakar sög-
ur af Jóni biskupi („elztu sögu“ og Gunnlaugs sögu) skal eg ekki fara
út i hér. Dr. F. J. beldur því fast fram að það sé ein og sama sagan,
hin svonefnda „elzta saga“ að eins endurbætt þýðing af latinusögu Gunn-
laugs (sbr. Lit. Hist. II, 405—406) og ætla eg það rétt vera. En ís-
lenzku þýðinguna hyggur dr. Finnur gerða um miðja 13. öld. Um það
er auðvitað erfitt að segja með nokkurri vissu og getur hún vel verið
eldri, t. d. frá, fyrri hluta aldarinnar, svo að frá þvi sjónarmiði er ekk-
ert því fyrirstöðu, að Styrmir sé höfnndur hennar.