Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.04.1912, Side 25

Skírnir - 01.04.1912, Side 25
Síöasti róðarmn. 121 Þeir tóku nú róðurinn aftur, langan og seigan, og gekk þeim nú betur, en í firðinum; því þótt báran væri meiri, var straumur hagstæðari, þar sem norðurfall var, en þeir héldu í norðaustur. Fjöllin gægðust hvort fram undan öðru, eftir því sem lengra dró til hafs; en að því skapi lækkuðu heimafjöllin fyrir sjónum þeirra Bárðar og félaga hans. Fjarðarmynnið hvarf. Það vatnaði yfir nesin og ströndina og ekkert varð greint nema blár fjallaveggurinn, tindóttur og skörðóttur. Þokubakkinn var nu orðinn næsta lágur — en þéttur og dimmur og leit út fyrir að vera vís til alls — vís til að hella yfir niðaþoku á ný, eða reka úr sér rosastorm hve- nær sem verða vildi. Sjóndeildarhringurinn við hafsbrún var skörðóttur og síiðandi og bar þess ljósan vott, að brot- sjóir og háar holskeflur léku þar feiknleika sina.--------- Enn var róið góða stund, unz Kópurinn sást, sæálfa- borgin fagra; var þá komið fullar fjórar vikur sjávar frá Furufjarðarþorpi. Þá lagði Bárður inn. Tók hann lóðar- belginn og varp honurn fyrir borð, og því næst var tekið að leggja lóðina. Slöngdi Bárður önglunum hart og títt í sjóinn, en þeir Arni og Sveinn reru út lóðina. Var nú kominn þéttingsstormur af norðaustri, og fór síhvessandi. — — — »Eg held það verði ekkert lag á þessu, piltar! — hann gerir v e ð u r !« sagði Bárður, þegar tæmdur var fyrsti lóðarbalinn, »eg legg ekki nema tvo bala; það verður víst nægilega erfitt að ná þeim at'tur*. Sveinn og Arni þögðu, en hugsuðu því fleira. Þeir fundu bezt, hvaðan hann stóð. Þeir áttu þegar fult í fangi, að róa út lóðina. Samt tókst þeim að leggja úr öðrum bala til, enda fylgdist að kapp og hreysti. Batt Bárður steininn við lóðina og strenginn og sökti öllu saman. Settist hann því næst einnig undir árar og veitti ekki af, svo að þá hrekti ekki frá bólinu; því að nú mátti heita að komið væri rok. Sjór var ákaflega úfinn —

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.