Skírnir

Volume

Skírnir - 01.04.1912, Page 28

Skírnir - 01.04.1912, Page 28
124 Siðasti róðurinn. lausarajöll og báturinn brakaði allur og stundi við hin óvægilegu högg ægisdætra. Bárður var fölur, en rólegur á svipinn, starði sífelt út yfir sæinn og gaf gætur að sérhverri öldu og sérhverju vindkasti; stýrði hann meistaralega og var engan óttasvip á honum að sjá. En Árni athugaði sérhverja vindhviðu og slakaði á klónni þegar hvassast var og alt ætlaði undan að ganga. Alt í einu hrópar Bárður: »Sitjið bátinn »hlestan«! Þarna kemur ógurlegur sjór! Hann drepur okkur ef hann nær okkur! Báturinn verð- u r að hafa fullan gang! Slakaðu ekkert á, Árni!« I sama bili og brotsjórinn hófst upp skamt fyrir aft- an bátinn, kom allsnörp rokhviða. Árni og Sveinn mjök- uðu sér betur til kulborða (það heitir, að sitja bát »hlestan«) til þess að báturinn þyldi því betur rokhviðuna. — Hviðan kom, þreif reginsterkum heljartökum i seglið svo að hrikti í höfuðbendum og gnast í hverri spýtu. Gnoðin brunaði af stað með geysihraða, sat í kol- grænni tóft og var umvafln fannhvítu froðulöðri — — eina lengd sína eða tvær — — þá slitnaði skautbandið! Báturinn kastaðist yfir á kulborða og misti nálega gangs. En holskeflan mikla að baki hans misti ekki gangs-------hennar skaut var ófúið! Hún hófst upp há og tignarleg, breiddi út sefgrænan, svalan faðminn, hring- aði mjallhvítan kambinn — og hrundi — beint yflr bát- inn, sem nú var sviftur sinni einu verju, seglinu.--------- Eitt augnablik hvarf alt í fossandi Iroðustraumum. Svo skaut bátnum upp aftur, og var hann þá á annari hliðinni. Árni hékk á borðstokknum, Bárður á stýrinu, en Sveinn sást hvergi.----------- Þá kom annar brotsjór — því að sjaldan er ein báran Btök — og hvolfdist yflr bátinn á sama hátt og hin fyrri hafði gert. Aftur huldist alt í gráhvítri hringiðu — og enn skaut bátnum upp. Nú var hann alveg á hvolfi. Stýrið var horfið og

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.