Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.04.1912, Side 93

Skírnir - 01.04.1912, Side 93
Frá útlöndum. 189 þar syð'ra segir hann það, að sór og félögum sinum hafi liðið vel. Þeir voru 16 saman í vetrarsetustaðnum við Mc Mourdo Sound 4 vetrarmánuðina og styttu sér stundir við lestur og fótknattleika. 2. nóv. lögðu þeir á stað suður á leið, voru á ferð á nóttunni, en hvíldust á daginn. Ferðin gekk slysalaust. Svo sendir Scott 3 af félögum sínum til baka, eins og áður segir, til þess að þeir geti komist heim með fregnir á »Terra nova« áður en ís lykur heims- skautshöfin. Fyrir þeim, sem aftur sneru, var lautinant Evans, en þeir 5, sem áfram héldu, eru: Kapt. Scott, Dr. Wilson, kapt. Oater, lautinant Bowers og P. O. Evans. Utlitið var gott, er þeir fólagar skildu, altaf sólskin, en þó kalt í veðri (þá um 20 st.). Frekari fregna er svo ekki að vænta frá þeim Scott á þessu ári. í nóvember í haust á »Terra nova« að leggja á stað suður aftur til þeBS að vitja þeirra. Ýmsir af fólögum Scotts fóru ekki með honum áleiðis til heims- skautsins, heldur í rannsóknarferðir í aðrar áttir. Kínabyltingin. Henni er nú lokið á þann hátt, að Kína er orðið lyðveldi sam- kvæmt fyrirskipun frá sjálfum keisaranum. Hann gaf út boðskap um þetta 3. febrúar í vetur. En þá hafði það á undan gengið, að byltingamenn höfðu valið sér forseta Sun-Yat-Sen, gamlan byltinga- foringja frá Kanton, er áður var þar læknir, en nú hafði lengi ver- ið landflótta í Ameríku. En hinn flokkurinn, er móti stóð, hafði þá varpað allri sinni áhyggju á Juan-Shi-Kai, og keisarinn og hans menn bygðu einnig vonir sínar á honum. Hann vildi breyta stjórn- arfyrirkomulaginu í þingbundna konungsstjórn og láta keisaraætt- ina á þann hátt halda völdum. En nú varð það samkomulag milli þeirra Juan-Shi-Kais og Sun-Yat-Sens, að stjórnarfyrirkomulagið skyldi verða lýðveldi og Juan-Shi-Kai forseti þess. Gefur svo keis- arinn út boðskap um þetta, eins og fyr segir. Lýsir fyrst og fremst yfir, að Kína skuli vera lýðveldi framvegis; samþykkir svo samn- inga þá, sem þeir Juan-Shi-Kai og Sun-Yat-Sen hafa gert um valda- afsal hans, en þar á meðal er það fram tekið, að hann skuli fá 4 milj. dollara í árlegan lífeyri og að hann verði að titlinum til áfram yfirhöfuð andlegu stóttarinnar. Boðskapurinn endar með ávarpi til varakonunganna og landstjóranna út af valdaafsalinu og hvatning til þeirra um, að halda sem bezt ró og friði í ríkinu. — Að nafn- inu til var forseti lýðveldisins kosinn á fulltrúasamkomu í Nanking og hlaut Juan-Shi-Kai kosningu. Þá var og ákveðið, að Nanking,

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.