Norðurljósið - 01.01.1969, Side 80
80
N ORÐURLJ 0 SIÐ
ferðir þessa töfralæknis við að láta fólkið skilja boðskap hans.
Hann tók hníf og boraði gat á magann á gömlum manni, skellti
höfuðið af lifandi hænu og notaði sterk lyf, sem hann sjálfur hafði
sett saman.
Meðan ég stóð þarna í heitu sólskininu og tók kvikinyndir af
„trúræknistund“ hans, fann ég kuldabylgjur fara upp og niður bak-
ið á mér! Trúið mér, þessi piltur gat haldið manni sem heilluðum.
í Búddatrúarmusteri hefi ég séð japanska guðsþjónustu, sem
sýndist lýsa guðrækilegri trúrækni.
í Indlandi hefi ég séð Indverja, 'bæði karla og konur, lauga sig í
óhreinu vatni heilagrar ár. Mér sýndist það vera mjög trúrækið, er
það laugaði sig í óhreinu vatninu og drakk það.
f Damaskus, borginni fornu, og á mörgum öðrum stöðum hefi
ég séð Múhameðsmenn í moskum sínum. Þeir sýndust vera mjög
trúræknir og einlægir, þegar þeir lásu úr Kóraninum, sneru bæna-
hjólunum og hugleiddu.
í Péturskirkjunni í Róm hefi ég séð kaþólska menn kyssa heitt
stóru tá hægri fótar á styttu Péturs postula. í huga mínum var eng-
inn efi á því, að þeir voru í sannleika mjög trúræknir menn.
Allir þessir menn voru einlæglega trúræknir, eftir því sem ég veit
bezt. Menn geta sýnt trúrækni í tilbeiðslu stokka og steina, með því
að drekka óhreint vatn úr Ganges eða beygja sig fyrir Búdda-líkn-
eski, en glatast samt sem áður.
Frelsunin er algerlega háð Jesú Kristi. Páll og Sílas sögðu við
fangavörðinn í Filippí: „Trú j>ú á Drottin Jesúm Krist, og þú mirnt
verða hólpinn.“
í fyrra bréfinu til Tímóteusar lesum við (2. 5.): „Einn er Guð,
einn er meðalgangarinn milli Guðs og manna, maðurinn Kristur
Jesús.“ Hinn eini, sem leitt getur Guð og synduga menn saman, er
Jesús Kristur.
í Jóhannes 3. 18. segir bihlían skýrt, að sá, sem ekki trúir, sé
fyrirdæmdur. „Sá, sem trúir á ihann, (Jesúm Krist), dæmist ekki;
sá, sem ekki trúir, er þegar dæmdur, því að hann hefir ekki trúað
á nafn Guðs-sonarins eingetna.“
Góði granni minn, maður getur verið mjög trúrækinn, sótt kirkju,
lesið í biblíunni og jafnvel verið skírður, en glatast þó. Þetta er
fjarska alvarlegt. Vertu viss um, að þú skiljir, hvað ég er að segja.
Maður getur verið trúrækinn, og þó verið ófrelsaður, verið dæmd-