Norðurljósið - 01.01.1969, Side 119
NORÐURLJÓSIÐ
119
sínum, og þar sem fólk á tnilli samkomanna vitnar í hverju liúsi og
heimili um Jesúm.
Það mun verða gagnrýni. Það er einkennilegt, en kaldur, sið-
venjuhundinn söfnuður með jarðarfararlíku andrúmslofti er lítið
gagnrýndur. — En komi eldur Guðs, þá verður hann gagnrýndur.
Við ættum að minnast þess, að hinn kæri Drottinn Jesús fór í
samkunduhúsið í Nazaret í mörg, mörg ár, án þess að fundið væri
að honum. Hann var fyrirmynd ungra manna. ... En dag nokkurn
kom hann á meðal þeirra fylltur heilögum Anda. Hann las Jes. 61. 1.
og sagði: „I dag hefir rætzt þessi ritningargrein, sem þér nú hafið
heyrt.“ Menn undruðust fyrst hin yndislegu orð, sem fram gengu
af munni hans. Svo reiddust þeir honum og reyndu að lífláta
hann .... Ó, það verður gagnrýni, jafnvel ofsókn og misskilning-
ur, ef prédikarinn og söfnuðurinn er fylltur heilögum Anda, og ef
hann birtir sig í guðsþjónustunum. En ef þú ætlar þér að bera
ávöxt og vinna mikinn fjölda fólks fyrir Krist, þá verður heilagur
Andi að fá að ráða.
Eg á ekki við að það sé óreiða á samkomunum, „Því að Guð er
ekki Guð truflunarinnar.“ (1 Kor. 14.33.). Ég á ekki við, að ekkert
sé skeytt um að búa sig undir ræðurnar. Hið allra hezta, sem mað-
urinn á til, er ekki of gott handa þjónustu Guðs. Eg á ekki við, að
við ættum ekki að hafa góða hljómlist og að sveigjanleiki og skyn-
semi ættu ekki að vera þátlur í guðrækni okkar. En það verður að
vera frelsi handa heiiögum Anda að ráða, ef söfnuðir okkar, fólk
okkar og prédikarar eiga að vera fylltir Andanum, vinna fjölda
fólks
(Þýtt úr „The Sword of the Lord.“)
3.
HELGUN OG HEILAGLEIKI.
Unglingurinn Daniel var kominn til Babel, fluttur þangað her-
tekinn af Nebúkadnezar konungi ásamt fleirum unglingum af ætt
konungs og höfðingja Júdaríkis. Ur hópi þessara ungmenna lét
Bahelkonungur velja unga menn til að uppala þá í þrjú ár og kenna
þeim tungu og bókmenntir Kaldea. Síðan skyldu þeir ganga í þjón-
ustu hans. Hann ákvað, að þeir skyldu neyta sömu fæðu og hann
sjálfur og drekka sams konar vín eins og hann. A meðal þeirra,