Andvari - 01.01.1972, Blaðsíða 64
62
JÓN GÍSLASON
ANDVARI
speki. Þeir, sem lögðu út á þessa braut, urðu að draga sig út úr skarkala heimsins
og hafa gott næði til að geta sinn hinu erfiða hugarstarfi sínu.
Eins og áður var tekið fram, hafði Platón aðalbækistöð fyrir kennslustarf sitt
í eða við íþróttamiðstöð (gymnasion) þá, er Akademeia nefndist. Milli þessarar
íþróttamiðstöðvar og Kólónoshæðarinnar átti Platón hús og garð, sem hann arf-
leiddi skólann að. Þegar hann og nemendur hans vildu liafa algert næði, fóru
þeir inn í garð meistarans. Annars 'höfðu þcir bækistöð sína í Akademeia, scm
skólinn dró nafn af.
Platón lét nemendur sína ekki greiða neitt kennslugjald. Hann tók aðeins við
þeim, sem hann taldi eiga eitthvert erindi til sín. Meistarinn, nánustu samstarfs-
menn hans og nokkrir hinna helztu nemenda neyttu máltíða saman. Var lítið í
þær borið. Tímoþeos, hershöfðingi Aþeninga, sem var góðu vanur í mat og drykk,
var einu sinni gestur Platóns við sameiginlegt borðhald í skólanum. Sagði hann
við Platón, er fundum þeirra bar saman skömmu síðar: „Veizlur ykkar eru
notalegri daginn eftir en meðan á þeirn stendur" (Adren. 419 d).
Að máltíð lokinni komu venjulega fleiri nemendur og gestir inn. Hófust þá
rökræður um ýmisleg efni, og stóðu þær stundum lengi.
Platón varð fyrstur til að leyfa konum aðgang að æðri skóla, enda var það í
samxæmi við kenningar hans í „Ríkinu", hinu fræga riti hans, þar sem hann
dregur upp mynd af ríki eins og það ætti að vera (Diog. Laert. III, 26). Eru tvær
nafngreindar, Lasþeneia frá Mantíneia og Axíoþea frá Flíús, en báðar klæddust
þær karlmannsfötum í skólanum.
En aðeins fáir útvaldir rnunu hafa átt þess kost að ræða við meistarann urn
æðri heimspekileg viðfangsefni. Munu þessar samkomur nánustu vina og vildar-
manna Platóns helzt hafa líkzt fundum í vísindafélagi fremur en eiginlegri
kennslu.
Ef ungir Aþeningar æsktu þess að loknu undirbúningsnámi að nema heim-
speki hjá Platón, áttu þeir tveggja kosta völ: annars vegar fyrirlestra, sem fluttir
voru á ýmsum stöðum, hins vegar skóla fyrir unglingsdrengi í Akademeia.
Ef rnark er takandi á þeim heimildum, sem nú eru fyrir hendi, hafa opinberir
fyrirlestrar Platóns lítt verið við alþýðuskap. Sérstaklega er þess getið í eitt
skipti, að Platón lét boð út ganga um, að hann ætlaði að flytja opinberan fyrir-
lestur um viðfangsefnið „Hið góða“. Áheyrendur urðu margir, því að ýmsa fýsti
að heyra þessu efni gerð rækileg skil. En flestum til sárra vonbrigða hóf Platón
mál sitt á greinargerð um tölfræði, flatarmálsfræði og stjörnufræði og ræddi síðan
um „hið eina“ og „hið góða“. Var málflutningur heimspekingsins óskiljanlegur
öllum }x>rra álreyrenda, og fóru þeir að smátínast burt. Eftir voru að lokum