Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1988, Page 44

Andvari - 01.01.1988, Page 44
42 JAKOB F. ÁSGEIRSSON ANDVARI Fiskmatsráð við stofnun þess 1960 og í Fríverslunarnefnd 1961, settist í stjórn Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda 1962 og kosinn í stjórn Hjartaverndar við stofnun hennar 1964. Þá beitti Pétur sér í ýmsum ópólitískum hitamálum samtímans. Hann skrifaði t.d. gegn byggingu Hallgrímskirkju, lagði til að efnt yrði til „verðlaunasamkeppni um framhald kirkjubyggingarinnar“ og smíði hennar tafin „þangað til tekist hefur að bylta teikningunum í það horf að hún verði minningu sálmaskáldsins samboðin.“ Hann hélt erindi í útvarp um frægt fjársvikamál og taldi „örugglega víst, að hér eru farin að myndast bófafélög, sem stunda margar tegundir glæpa og þar sem hver glæpamaður styður annan með ráðum og dáð.“ Og Pétur Bene- diktsson barðist ákaft fyrir kosningu dr. Kristjáns Eldjárns í embætti forseta íslands, — svo fátt eitt sé upp talið. Fljótlega eftir heimkomu sína varð Pétur auk allra annarra umsvifa einskonar fimmti ritstjóri að Nýju Helgafelli, sat jafnan ritstjórnar- fundi með ritstjórunum Ragnari Jónssyni, Tómasi Guðmundssyni, Kristjáni Karlssyni og Jóhannesi Nordal, en þeir fimm höfðu jafnan fyrir sið að borða saman einu sinni í viku á Naustinu. í einni af greinum sínum í Nýju Helgafelli fjallaði Pétur á sígildan hátt um nauðsyn þess fyrir íslenska þjóðmenningu að íslensk fræði, fornbókmenntirnar, væru lifandi eign almennings, en ekki aðeins sér- fræðinga, og að alþýða manna hefði þörf og áhuga til að fjalla um þau með sérfræðingunum: „Örlögin ráku mig um daginn inn á matsöluhús kaupfélags eins á Norðurlandi. Sat ég þar einn við borð að morgni dags og fékk mér hressingu. Væri þetta síst í frásögur færandi, ef það hefði ekki orðið til þess, að ég fór að leggja hlustirnar við tali tveggja borgara bæjarins, sem dvalist hafði yfir morgunkaffinu. Áður en ég hafði numið orðaskil í viðræðu þeirra, veitti ég því athygli, að hinn eldri var all-ákafur og lét sér næsta annt um að sannfæra hinn um eitthvert mikilsvert atriði. Mér datt fyrst í hug, að mennirnir væru að ræða um gengislækkun eða bæjarstjórnarkosningar, en brátt heyrði ég að svo var ekki. Umræðu- efnið var skýring vísu einnar allflókinnar í Egils sögu. Pótt mér tækist ekki að fylgja þræðinum í samtalinu til fulls, duldist mér ekki, að allar skýringar hinna lærðu útgefenda voru vegnar og léttvægar fundnar. Mátti þó virða þeim villu sína til vorkunnar, sem séð hefðu um útgáfu sögunnar, áður en Eiríkur læknir Kjerúlf benti á hina einu réttu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.