Andvari - 01.01.1988, Blaðsíða 50
48
JAKOB F. ASGEIRSSON
ANDVARI
starfsamastur og skylduræknastur, gleymdi hann aldrei því, að hverja
stund má nota til þess að auka lífsgleði og hamingju. Þess vegna hafði
hann ætíð tíma til þess að gleðjast og fannst aldrei neinir veraldlegir
hlutir svo hátíðlegir, að ekki mætti hafa þá að gamanmálum. Af sama
toga spunnin var hjálpsemi hans og áhugi á kjörum annarra, er hann
mátti lið veita. Mannlífið í öllum sínum tilbreytileik var honum eilíft
undrunar- og gleðiefni, og hann átti flestum mönnum auðveldara með
að blanda geði við annað fólk.
Þótt Pétur væri óvenjulega tilfinningaríkur maður, hataði hann alla
tilfinningasemi og sjálfsmeðaumkun. Ég held að slíkt hafi öðru fremur
sært fegurðartilfinningu hans gagnvart lífinu sjálfu, sem hann vildi að
menn tækju með fögnuði í velgengni, en æðruleysi í mótlæti. Þannig
tókst honum líka sjálfum að lifa til hinsta dags.“
HEIMILDIR AÐ ÍVITNUNUM
Heimildir að ívitnunum í orð Péturs Benediktssonar er flestar að finna í skjalasafni hans, sem
er í vörslu ekkju hans, frú Mörtu Thors, og er þar einkum um að ræða afrit af skýrslum og
bréfum Péturs til utanríkisráðuneytisins, svo og afrit af ræðum hans og blaðagreinum frá
ýmsum tímum. Tilfærð orð úr bréfi utanríkisráðuneytisins til Péturs, frásögn af einum fundi
utanríkismálanefndar, og ummæli Hugh Ellis Rees frá 324. fundi OEEC-ráðsins 20. apríl
1956, eru sömuleiðis fengin úr skjalasafni Péturs sem geymir ljósrit af þessum heimildum. I
eftirtaldarprentaðar greinar Péturs er vitnað orðrétt: Fáein orð í hreinskilni í Minningum úr
Menntaskóla (1946); Milliliður allra milliliða í Nýju Helgafelli 4. hefti 1956; Kommúnisminn
er vopn gamallar heimsveldisstefnu Rússa í Morgunblaðinu 4. nóvember 1956; Þvottahúsið
Snorralaug í Nýju Helgafelli 2. hefti 1957; Ekki eintómir englar íFrjálsri verslun 6. hefti 1959;
Enn um bankamálin í sama riti, 2. hefti 1960; fáein orð um Hallgrímskirkju íStúdentablaðinu
1. tbl. 1964; Tuttugu ára afmœli Marshallhjálparinnar í pésanum Hornsteinn hagsœldar
(1967); og viðtöl við Pétur Benediktsson í Morgunblaðinu 8. desember 1946, 26. ágúst 1951
og 19. mars 1969, og í Stúdentablaðinu 1. desember 1968. Aðrar prentaðar heimildir sem
vitnað er í orðrétt eru þessar: Benedikt Sveinsson eftir Guðmund G. Hagalín íAndvara 1956;
Bernskuheimili og uppvaxtarár eftir Ólöfu Benediktsdóttur í bókinni Bjarni Benediktsson í
augum samtíðarmanna (1983); Frá Hafnarstjórn til lýðveldis eftir Jón Krabbe (1959); Lífið er
lotterí—saga af Aðalsteini Jónssyni ogAlla ríka eftir Ásgeir Jakobsson (1984);afmælisgreinar
eftir Kristján Albertsson í Vísi 8. des. 1956, Jón Axel Pétursson íAlþýðublaðinu 8. des. 1966
og ritstjóra Vísis 8. des. 1966; minningarorð eftir Jóhannes Nordal, Loft Bjarnason, Ragnar
Jónsson, Stefán Pétursson og Valtý Pétursson í Morgunblaðinu 4. júlí 1969, eftir Gils Guð-
mundsson og Sverri Kristjánsson í Þjóðviljanum sama dag og eftir Svanbjörn Frímannsson í
íslendingaþáttum Tímans 14. ágúst 1969. — Ummæli Péturs Thorsteinssonar og Haralds
Kröyers eru fengin úr samtölum höfundar við þá, sama gildir um sumt af því sem haft er eftir
Ólöfu Benediktsdóttur. Orð Hilmars Foss eru, svo sem frá er skýrt í meginmáli, úr óprentaðri
ritgerð hans um Loftárásavetur í Lundúnum. Mannlýsing Kristjáns Karlssonar í upphafi
greinar er skrifuð sérstaklega að beiðni höfundar.