Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1988, Side 54

Andvari - 01.01.1988, Side 54
52 JÓN VIÐAR JÓNSSON ANDVARI er í rauninni undarlegt að ferill hans skuli ekki hafa vakið meiri áhuga en raun ber vitni. Sannleikurinn er sá að þessi ferill er allur svo fjölbreyttur og forvitnilegur að leitun er á öðru eins. Þó að sum skáldverk hans séu ólíkleg til að verða nútímamönnum sérlega hugstæð þá fer því víðs fjarri að hið sama gildi um sögu hans sjálfs, allt frá því hann vekur þjóðarathygli átján ára gamall fyrir miðilsstörf, þar til hann er myrtur af dönskum frelsisliðum fjörutíu árum síðar. Kamban er þannig ekki nema tuttugu og sex ára gamall þegar hann sigrar sem leikskáld á sviði Konunglega leikhússins í Kaup- mannahöfn — og má í því sambandi minna á að Jóhann Sigurjónsson þurfti að berjast í tólf ár og var vel yfir þrítugt þegar frægðin kom loksins með Fjalla-Eyvindi. Kamban hélt ungur til Ameríku og dvaldi þar í tvö ár; um það sem á daga hans dreif á þeim tíma er sáralítið vitað, en Ijóst að eftir þá ferð kemst hann til þroska sem skáld. Aftur snúinn til Danmerkur sinnir hann ritstörfum og leikstjórn jöfnum höndum, en leikhússtarfi kynntist hann fyrst sem aðstoðarleikstjóri við sviðssetningu Höddu Pöddu. Hér á landi kom Kamban raunar fram bæði sem leikari og upplesari, og hlaut fyrir mikið lof, en í Danmörku náði hann talsverðri viðurkenningu fyrir leikstjórn, ekki síst sinna eigin verka, en þó í einhverjum mæli annarra líka. Á þessum tíma er íslensk leiklist vitaskuld að öllu leyti í höndum áhugamanna, og er Guð- mundur Kamban því fyrstur íslendinga til að starfa að þessum hlutum sem atvinnumaður í nútímaskilningi, þó að á erlendri grund sé. Kvikmyndagerð spreytti hann sig einnig á, þegar hann stýrði töku kvikmyndar Höddu Pöddu, og þá má til gamans geta þess að hann er trúlega líka fyrstur íslenskra leikskálda til að skrifa útvarpsleikrit. Væri að því mikill fróðleikur ef allt þetta starf yrði kortlagt og kannað og sama máli gegnir vitaskuld um pólitísk viðhorf hans, afstöðu til nasismans og samneyti við Þjóðverja eftir hernám Danmerkur. Um þau mál er í rauninni of lítið vitað enn, þó að ekki sé nokkur minnsta ástæða til að halda að samskipti hans við nasista hafi verið tortryggi- leg á einhvern hátt. Menn skyldu ekki vera of fljótir til ályktana, enda þótt Kamban léti falla jákvæð orð um ákveðna þætti í framkvæmd þjóðernis- sósíalismans og sumar skoðanir sem fram koma í ritgerðasafninu Kvalitets- mennesket (1941) — þar sem m.a. er um það rætt hvernig skapa megi yfirburðamannkyn með hjálp tækni og vísinda — virðist í fljótu bragði ekki með öllu óskyldar ákveðnum atriðum nasískrar hugmyndafræði. Það varð hlutskipti Guðmundar Kambans að bíða tilfinnanlega ósigra: þegar ferill hans er skoðaður dylst ekki að hann hefur furðu oft mátt þola vonbrigði og beinlínis niðurlægingu. Kannski sárnaði honum sjálfum mest að ná ekki þeirri alþjóðlegu viðurkenningu, sem hann keppti að; í bókmennta- sögu sinni ýjar Kristinn E. Andrésson að því að hann hafi hreinlega verið of stoltur til að hverfa aftur til íslands eins og Gunnar Gunnarsson, án þess að vera orðinn nógu frægur. Um þetta skal ekkert fullyrt: víst er að Kamban var
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.