Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1988, Page 60

Andvari - 01.01.1988, Page 60
58 JÓN VIÐAR JÓNSSON ANDVARI rómantík æskuleikjanna. Hún var nauðsynlegur þáttur á þroskabraut hans, þó að hún yrði síðar að spennitreyju sem hann varð að slíta af sér. Kannski var hann of óþolinmóður, sást ekki fyrir í eldmóði sínum og heilagri vandlætingu og trúði því að heimurinn léti sér segjast af ádrepum hans. Hafi hann í alvöru haldið eitthvað slíkt — og ég minni á að hann var sjálfur ekki aðeins ákaf- lyndur ofurhugi, heldur einnig afspringur þeirra tíma þegar enn var trúað á hugsjónir — þá leyndist einnig innra með honum rödd sem bað hann um að láta ekki blekkjast; maðurinn væri hvort eð er ekki borinn í þennan heim til að sigra nema í hæsta lagi yfir sjálfum sér, öld réttlætisins stæði ekki á dagatali þessarar kynslóðar né hinna næstu. Hlutverk skáldsins væri ekki að hafa vit fyrir samtíð sinni eða innræta henni réttar skoðanir, heldur að kveða harm- ljóð yfir þeim föllnu; bera þjáningunni vitni og kenna með þeim hætti auðmýkt andspænis fallvaltleikanum, ást á sannleikanum, umburðarlyndi og virðingu fyrir öðru fólki. Það kann að hljóma sem hálfgerður kaldrani, en í þessu Ijósi skoðað finnst manni dauði Kambans sjálfs einkennilega viðeigandi lokapunktur á ævi hans. Ég ítreka það sem ég sagði hér að framan að viðhorf og mök hans við nasista þyrfti að rannsaka. Mér þykir að vísu fremur ósennilegt að slík rannsókn myndi í nokkru breyta mynd okkar af honum; eins og hann kynnir sig í öllum verkum sínum virðast fáir ólíklegri til að gerast liðveislumenn ógnarstjórnar og ofbeldisafla. Og yfir falli hans, framkomu hans við böðlana þegar þeir skipa honum að fylgja sér út, er óviðjafnanleg tragísk reisn; eins og líf og skáldskapur renni að lokum í eitt, sannleikur hinnar tragísku hetju öðlist staðfestingu á vígvelli veruleikans. Hvaða hugsanir þjóta um hug harmleikjaskáldsins á stund háskans, þegar vopnunum er beint að honum sjálfum? Eitt sekúndubrot rifjast kannski upp fyrir honum það sem hann lét Róbert Belford segja áratugum fyrr, að allir lifi til einskis; svo að til hvers er þá að kaupa sér fáein ár í viðbót. Jafnvel þótt lífsstundirnar kunni að vera einhvers virði, þá er það verð sem nú er sett upp alveg örugglega of hátt. Órétturinn mun alltaf sigra, illska og hatur ævinlega ráða ríkjum. Á öld morðæðis og myrkraverka er sakleysi engin vörn, enginn óhultur, öll mannleg gildi troðin fótum og svívirt. Guðmundur Kamban veit að skjöldur hans er flekklaus, hann þarf ekki að svara til saka fyrir dómstóli götunnar. Byssukúlur geta ekki grandað því sem mestu skiptir: góðu mannorði og vel unnu lífsstarfi. Hann veit líka að hvað sem á dynur þá er eitt sem ekki verður frá manninum tekið: rétturinn til að segja nei. Bresti hann kjark til að neyta þessa réttar, lyppist hann niður fyrir hótunum, þá er sannarlega allt til einskis; þá hafa grimmdin og bleyðiskapurinn hrósað sigri. Takist honum hins vegar að yfirbuga óttann, bregðist rétt við á úrslitastundinni, þá hefur hann ekki aðeins höndlað það frelsi sem eitt er nokkurs vert, heldur líka afhjúpað ofbeldið, svipt af því lygagrímunni sem það skýlir sér á bak við. Annan og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.