Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1988, Side 85

Andvari - 01.01.1988, Side 85
ANDVARI BRÉFTIL LÁ'I'INS VINAR MÍNS - MEÐ VIÐAUKA 83 sýna aö bókin fari fram á spænsku þó hún sé skrifuð á ensku og er nokkurt vit í að reyna að fara að apa það eftir í þýðingunni? Og þú sagðir, ég veit ekki, en það fer nú anzi vel hjá Hemingway. Og ég sagði: eða þessir eintalskaflar hjá manndjöflinum, og hvers konar þrugl eru þessi dulmáls-blótsyrði, og elskend- urnir, það eru ekki manneskjur, það er gervifólk, amerískt og billegt, og þessar innfjálgu samræðislýsingar, „jörðin hreyfðist“ og allt það, svoleiðis skrifa engir nema guðsgeldingar og kynvillt fólk. Og þú hlóst og sagðir, ertu nú viss um það? Og stundum var ég hrifinn og sagði, þetta er tóm vitleysa hjá mér, fólkið má ekki tala rétta ensku, eða íslenzku, þetta er útlent og framandi fólk, mjög útlent og mjög framandi, og verður að vera það, líka í þýðingunni, og elskend- urnir eru ágætir, þau eru ekki persónur og eiga ekki að vera það, þau eru bara LIFIÐ sjálft í þess heitasta bruna, andspænis viðgínandi DAUÐA, og þess vegna eiga samræðislýsingarnar fullan rétt á sér. Þetta er plagsiður Heming- way’s, þessa þriggja styrjalda stríðsmanns og villidýraveiðara og nautabana- dýrkara, alltaf skal hann í bókumsínum vera á mörkum Lífs og Dauða, etjandi rauðasta lífi gegn yfirvofandi tortímingu, þó aldrei í eins ríkum mæli og í þess- ari bók. Þess vegna er hann svona töfraður af nautaötunum, sem hann aldrei þreytist á að lýsa af endalausri alúð og óviðjafnanlegri snilld; og manstu í The Green Hills of Africa, sagði ég, þegar hann er að lýsa hýenunni sem fær skot í magann og leggst niður og hringar sig upp og etur innyflin úr sjálfri sér? - Og klámið og formælingarnar er ágætt líka, sagði ég, „Mjólk“, „Svört mjólk“ og „I this and that in the this and that of thy father. I this and that and that in thy this“, er það ekki dýrðlegt? og þú sagðir jú og hlóst. Og stundum var ég efasamur og vissi ekki hvað ég átti að halda; þessi stíll hans, sagði ég, þessi fljótandi James Joyce stíll hans á eintalsköflunum, víst er hann fallegur, það er eins og Mozart- músík spiluð með lausum úlnlið og mjög léttum áslætti, eða eins og maður fari á skautum yfir næturlagðan ís, en finnst þér hann oft ekki nokkuð tilviljunar- kenndur? og þú sagðir, ég veit ekki, Hemingway var nú á fjórða ár með bókina, ætli það sé ekki allt gert með ráðnum hug? Og svo þetta með nú-ið, sagði ég, ósköp þreytir þetta nú-stagl mig, það er í annarri hvorri setningu og stundum margsinnis í sömu setningunni, á maður virkilega að reyna að halda því í þýð- ingunni? og þú sagðir, það er nú anzi sterkt hjá Hemingway, þetta er bók nús- ins, gerist á einum þremur dögum. Eða þetta ólýsanlega engilsaxneska under- statement, sagði ég, aldrei hef ég séð það svona hreinræktað, og hvernig í and- skotanum nær maðurinn svona miklum áhrifum með því, og hvað á þýðanda- greyið að gera þegar honum má aldrei detta í hug hástemmt orð eða kliðuð setning, ég tala nú ekki um stefjaðan málshátt, ekkert má vera rishærra en „vel“ °g „slæmt“ og „mjög mikið“? og þú sagðir, já, það er erfitt viðfangs. Og ævin- lega endaði ég samtalið á sama veg: þetta er ómögulegt, sagði ég, ég get það ekki, það verður hreinasta handaskömm hjá mér, og ævinlega hlóst þú þínum góða ofurlítið skræka hlátri og sagðir, uss, ekki kvíði ég mikið fyrir því! - Og
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.