Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1988, Page 90

Andvari - 01.01.1988, Page 90
88 STEFÁN BJARMAN ANDVARI inn algerlega févana, heldur einnig skuldugur, svo ég sagði mig frá stúdents- prófi og fór að vinna hjá Einari Sæmundsen, skógarverði! Mér er enn í minni þegar ég labbaði á fund Jóns Ófeigssonar, og sagði honum að ég væri hættur við próf- ég hélt hann ætlaði að berja mig! — Má vera að ég hefði slampazt í gegn- um prófið, ég var sæmilegur í sumum fögum, en mjög götóttur og næstum blankur í öðrum - en hverju hefði ég verið nær? Mig hafði persónulega aldrei fýst til framhaldsnáms í neinni af þeim fáu greinum sem um var að velja hér heima þá, mig skorti algerlega alla „ambition“ — og hefur ætíð skort — en í ætt minni var mikið um prestablóð, og móður mína blessaða langaði til að „berja“ mig til prests, en lof sé öllum góðum vættum fyrir að ekkert varð úr því, ég var þegar orðinn fráhverfur trúarbrögðum áður en ég var fermdur! - Jæja, að undanskildum þremur næstu árum, var ég óslitið búsettur í Reykjavík fram til ársloka 1924, og jafnan með annan fótinn í Unuhúsi sem áður fyrr. Þá tóku við utanlandsár mín, í Englandi, Kanada, Bandaríkjunum, og síðast tæp tvö ár í Kaupmannahöfn, en þaðan kom ég til Reykjavíkur miðsumars 1931, - og auð- vitað fyrst allra staða í heimsókn í Unuhús. Þar var orðin mikil breyting, Una gamla dáin, og Erlendur orðinn skrifstofustjóri á Tollskrifstofunni, húsið að vísu sami allsherjar „Salon“ og áður en nú hreint og þrifað, og allt „Hærværk“ frá dögum gömlu konunnar fyrir bí. Það var góð heimkoma! Ég var búsettur í Reykjavík til 1945, en flutti svo til Norðurlands, og stundaði kennslu fyrst á Akureyri, svo á Siglufirði og loks á Dalvík, en dvaldi á hverju sumri eftir skólalok frá einum og upp í þrjá mánuði í Reykjavík, og þá jafnan með annan fótinn í Unuhúsi. Og svona liðu árin. Eins og tízka var þá, var ég auðvitað stundum að reyna að „skálda“ eitthvað (hafði raunar á unglingsárum bangað æði miklu saman í bundnu máli, en eyðilagt allt jafnharðan); árið 1937 (minnir mig) samdi ég heila „skáldsögu“, sem ég sýndi Erlendi einum manna, en við komumst að þeirri niðurstöðu að það væri að mestu stuldur úr trílógíu sem við höfðum báðir nýlega lesið eftir þýzka sagnaskáldið J acob Wassermann, að viðbættum stílsbrögðum Joseph Conrad’s, sem ég um þær mundir var hrif- inn af, svo heila gumsið hafnaði í ruslakörfunni, and good riddance! - En Erlendur var stundum að impra á að ég reyndi við þýðingu á einhverri sæmi- legri bók, en ég var um það leyti andvígur „yfirflutningi“ góðbókmennta af frummálinu. Það eina sem ég hafði borið við í þeim efnum var yfir í Bandaríkj- um, þegar ég komst í kynni við smásagnahöfundinn O’Henry, sem sló mér al- veg við, svo ég hripaði í striklotu þýðingu á einum tíu smásögum hans á sundur- lausa pappírssnepla, sem flestir týndust á flækingi mínum, utan hvað Þorsteinn Ö. fékk einhvern tíma tvær eða þrjá hjá mér og las í útvarpi. En nú gerðist það að árið 1939 kom út ný bók eftir John Steinbeck, „The Grapes of Wrath“, og vinur minn vestra sendi mér eintak af henni áður en hún kom í bókaverzlanir hér. Um þær mundir lá einn af æskuvinum mínum, Stein- grímur Einarsson Eyfjörð, læknir á Siglufirði, erfiða banalegu af Röntgeneitr-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.