Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1988, Page 119

Andvari - 01.01.1988, Page 119
ANDVARI HJÁLMAR í bólu og rómantíkin 117 skiptum gæðum jarðarinnar, heldur einnig gegn óblíðri náttúru íslands og jarðlífinu almennt. Eitthvað þráir andi manns annað en fann á jörðu, lengra gáir hugur hans, heim vill ná til betra lands. (102) Oft reyndi hann að hlusta á raust kirkjunnar sem boðar að allt sé í guðs hendi. Jarðlífið sé einungis stuttur útlegðar- og kvalatími frá eilífri sælu himnanna. EnþóttHjálmarværi í eðlisínu einlægur trúmaður náði þessi rödd ekki alltaf að sannfæra hann og fá hann til að sætta sig við hlutskipti sitt. Drottinn var svo fjarlægur. Hann huldi sig „leyndardóms í dimmu skýi“ (192), lokaði himninum fyrir ,,trúarhönd“ skáldsins og gaf engar skýringar á því hvers vegna eymd mannanna viðgengst. Þannig átti Hjálmar það til að rísa upp gegn guði sínum: „en viljirðu ekki orð mín heyra, / eilíf náðin guðdómlig, / mitt skal hróp af heitum dreyra / himininn rjúfa kringum þig“ (5). Ekki aðeins yrkisefni Hjálmars réttlæta það að kalla hann alþýðuskáld heldur einnig sú staðreynd að hann var í senn lítt menntaður og að mestu eða öllu leyti ósnortinn af erlendum samtímaskáldskap. Að þessu leyti ber hann frá mörgum öðrum skáldum 19. aldarinnar sem einnig hafa oftlega verið kennd við alþýðuna, svo sem Sigurði Breiðfjörð og Páli Ólafssyni. Bók- menntalegar fyrirmyndir Hjálmars eru þannig fyrst og síðast af innlendum toga, veraldlegum og kristilegum. Þegar rímnaskáld frá ýmsum tímum eru undanskilin koma hér upp í hugann ýmis skáld fyrri alda, Skáld-Sveinn, Bjarni Jónsson skáldi, Hallgrímur Pétursson, Stefán Ólafsson, en einnig menn sem standa nær Hjálmari í tíma, Jón Þorláksson, Eggert Ólafsson og Sigurður Pétursson. í sumum kvæðum Hjálmars má auk þess sjá að hann hefur haft nokkur kynni af þeim Bjarna Thorarensen og Jónasi Hall- grímssyni. Þær kristilegu bókmenntir sem standa Hjálmari næst eru hins vegar Biblían, postillur og sálmakveðskapur. Á þessari innlendu bókmenntaarfleifð grundvallast skáldskaparstíll Hjálmars. í fyrirrúmi sitja bragarhættir og skáldamál rímnakveðskaparins, en til hliðar eru einfaldari bragarhættir eddukvæða, sálmahættir og jafnvel fornklassískir hættir á borð við sexliðu (hexameter). Oft verða frávik Hjálm- ars frá rímnaháttunum rakin beint eða óbeint til einhverra ákveðinna fyrir- mynda. Þannig er sexliðukvæðið „Aldarháttur“ til dæmis bein stæling á samnefndu kvæði Hallgríms Péturssonar. Ljóðaháttarkvæðið „Hlutaveltu- fundur á Víðimýri“ minnir hins vegar um margt á „Alþing hið nýja“ eftir Jónas.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.