Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1996, Page 98

Andvari - 01.01.1996, Page 98
96 SVEINN SKORRI HÖSKULDSSON ANDVARI urður mat ágreining þeirra réttilega í fyrstu grein sinni er hann sagði: „Sannleikurinn er sá, að hér er miklu fremur að ræða um ágreining tveggja kynslóða en tveggja manna.“ Þetta eru orð að sönnu. í þessari ritdeilu varði aldinn rithöfundur margar göfugustu hugsjónir nítjándu aldar fyrir gagnrýni einhvers gáfaðasta og menntaðasta fulltrúa hinnar tuttugustu. Sigurður taldi að fyrirgefningunni hlytu ávallt að verða þau takmörk sett að við gætum ekki fyrirgefið öðrum það sem við myndum ekki fyrirgefa okkur sjálfum. Hann bætti við: „Og þegar fyrirgefningin er orðin almenn krafa, getur hún lfka orðið illkynjað mein.“ Sigurður snerist líka öndverður gegn einhyggju Einars og hugmyndinni um guð í syndinni og þar með hinu illa. Hann sagði: „Mér er tamast að hugsa mér guð sem unga hetju, sem berst blóðugur og vígamóður, en ljómandi af von og þrótti, við dreka hins illa. Hann er ljósgeislinn, sem klýfur myrkrin, en megnar ekki að útrýma þeim.“ Einar varði viðhorf sín af ótrúlegri andlegri vígfimi svo aldurhniginn sem hann var. Um afstöðu sína til einhyggju og tvíhyggju sagði hann: Annaðhvort verðum vér að vera einveldismenn eða tvíveldismenn í hugmyndum vor- um um tilveruna. Annaðhvort verðum vér að ætla, að frumaflið, það vitsmunaafl, sem drotnar í tilverunni, sé eitt - það vitsmunaafl, sem vér nefnum guð - eða að frumöflin séu tvö, annað gott og hitt ilt, og að eðli þeirra sé svo háttað, að þau geti aldrei runnið saman, en hljóti að heyja stöðuga og eilífa baráttu hvort við annað. Eg er einveldismaður í þessum skilningi. Eg get ekki með nokkuru móti hugsað mér tilveruna annan veg en sem eining, heild. Eg held, að sú þrá mannsandans, að það góða vinni sigur, sé ekki gripin úr lausu lofti, heldur eigi hún rætur í því allra- dýpsta í tilveru vorri. En það er bersýnilegt, að séu frumöflin tvö, þá getum vér enga trygging haft þess, að annað þeirra verði nokkru sinni máttugra en hitt. Mér finst líka, að alt, sem vér vitum um mannlífið, bendi í þessa átt. Vér finnum aldrei það illa „hreinræktað", einangrað frá öllu góðu. Ekki varði hann síður fyrirgefningarkröfu sína, taldi hana grundvallar siða- skoðun kristinnar trúar og sagði m. a.: Pað uppeldi, sem stefnir burt frá frelsinu, skilningnum, mannúðinni, fyrirgefningar- hugsjóninni, hefir öld fram af öld verið mannkynsins mesta bölvun. Hámarkið af ár- angri þess fengu menn í veraldarófriðnum mikla. Þó að ómögulegt sé að segja að annar bæri sigurorð af hinum í þessari deilu má með miklum rétti halda því fram að með henni lyki óskoruðu andlegu veldi Einars H. Kvarans á íslandi. Brátt tók annar höfundur að hringja þeirri íslandsklukku sem allir lögðu eyru við. Við tóku aðrar kyn- slóðir með önnur lífsviðhorf og annað gildismat. Hafði hann þá til einskis lifað, til einskis knúð klukku sína, til einskis samið skáldskap til hjálpar mönnunum, til lækningar meinanna, til varnar því sem hann taldi hið góða, fagra og sanna?
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.