Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1996, Side 116

Andvari - 01.01.1996, Side 116
114 JÓN KARL HELGASON ANDVARI eða hefð. Slík hefð á sér ekki ákveðið upphaf né skýran endi heldur þróast hún í meðförum hóps íslenskra fræðimanna á fyrri hluta aldarinnar í takti við tímann og í togstreitu við viðurkenndar hugmyndir almennings um sög- urnar. Ef tengja á útgáfustarf Halldórs Laxness við þessa hefð er nauðsyn- legt að gera sér grein fyrir hvar kenning íslenska skólans var á vegi stödd árið 1941 þegar tilkynnt var um væntanlega útgáfu Halldórs á Laxdœla sögu. Nærtækasti vitnisburðurinn um það er rit Sigurðar Nordals um Hrafnkötlu sem út kom árið 1940. Þar fullyrti Sigurður, eins og frægt er, að Hrafnkels saga væri skáldskapur frá rótum, með „öll einkenni ágætrar skáldsögu“.12 II Jón Hnefill segir í grein sinni hæpið að telja Hrafnkötlu tímamótaverk ís- lenska skólans því að þar sé „um einstaka rannsókn að ræða, sem [Sigurður Nordal] varar við að draga af almennar ályktanir14.13 Vissulega leggur Sig- urður áherslu á að niðurstaðan varðandi Hrafnkels sögu eigi ekki sjálfkrafa við um aðrar íslendingasögur - rannsaka beri hverja sögu „sem gaumgæfi- legast út af fyrir sig“ (s. 70). Aftur á móti ræðir hann á lokasíðum bókar- innar almennt um kenningar íslenska skólans, metur árangur undanfarinna áratuga og leggur drög að óformlegri stefnuskrá fyrir þau ár sem í hönd fari. Sigurður segir þar meðal annars: Þær rannsóknir á efni Islendinga sagna, sem í raun og veru hefjast með ritgerð Kon- ráðs Maurers um Hænsa-Þóris sögu, var haldið áfram í svipuðum anda af Birni M. Olsen (einkum í ritgerð hans um Gunnlaugs sögu), en nú er loks reynt að þoka áleið- is í samfellu í sambandi við útgáfur Hins íslenzka Fornritafélags, - hafa jafnan siglt milli skers og báru. Á báðar hendur hafa verið skoðanir manna, sem vildu leysa við- fangsefnið á einfaldara hátt. Annars vegar hefur verið rótgróin trú á traustleik og ágæti munnmælanna, hins vegar, einkum í seinni tíð, afneitun þess möguleika, að munnmæli geti varðveitt nokkurt sögulegt efni í tvær til þrjár aldir. (s. 77) Sigurður segir að í formálum fyrir útgáfum íslenzkra fornrita hafi verið „tekið miklu meira tillit til hinna gömlu skoðana á sögunum, - skoðana al- mennings á Islandi og þeirra fræðimanna, sem leggja megináherzlu á arf- sagnirnar, - heldur en sjónarmiðs hinna „krítisku“ sagnfræðinga“ (s. 78). Sigurður virðist ekki alveg sáttur við þessa stefnu; annars vegar hafi útgef- endur gert of mikið úr sagnfræði og þætti munnmæla í efni íslendinga- sagna, hins vegar hafi „hlutfallslega verið allt of mikið af fornfræði í þess- um útgáfum“ (s. 78). Hann skýrir þessa áherslu að nokkru leyti með vísan til bakgrunns og menntunar útgefendanna en þarna hafi markaðssjónarmið einnig komið til greina: „Útgáfurnar eru fyrst og fremst gerðar handa ís-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.