Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1996, Side 119

Andvari - 01.01.1996, Side 119
andvari HALLDÓR LAXNESS OG ÍSLENSKI SKÓLINN 117 prentfrelsi.17 Á meðan málið var þar til meðferðar, vorið 1943, tókst þeim Halldóri að fá leyfi hjá Einari Arnórssyni, þáverandi kennslumálaráðherra (og tengdaföður Halldórs til margra ára), til að gefa út Njáls sögu. Alþingi brást að þessu sinni við með því að samþykkja þingsályktun þar sem mælst var til þess að Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins sendi frá sér aðra útgáfu af sögunni, „þar sem ekki finnist fingraför þeirra manna, sem allt vilja draga niður í sorpið og jafnvel þyrma ekki okkar dýrmætustu listaverkum eins og Njálu frá þeim örlögum“, eins og segir í þingsályktun- artillögunni.18 Vegna þess mikla moldviðris sem fornritaútgáfa Halldórs vakti er ekki vel Ijóst hvernig hún tengdist starfi íslenska skólans. Það liggur betur við að tengja hana þeirri gagnrýni sem málfar og stafsetning á skáldsögum og þýðingum Halldórs höfðu mátt þola á undanförnum árum,19 sem og póli- tískum og persónulegum deilum Halldórs og Jónasar Jónssonar frá Hriflu (svo virðist sem Jónas hafi staðið að baki lagasetningunni 1941 og þings- ályktunartillögunni um útgáfu á Njáls sögu tveimur árum síðar). Sjálfur hafði Jónas haft uppi stórtæk áform um að Menningarsjóður stæði að út- gáfu á íslendingasögum handa almenningi; tilkynning Víkingsútgáfunnar setti þar strik í reikninginn.20 í þessu flókna samhengi má þó greina nokkra hlekki milli Halldórs og íslenska skólans. Skýrustu vísbendinguna um jákvæð áhrif Sigurðar Nordals á fornritaútgáfu Halldórs er að finna í grein sem sá síðarnefndi skrifaði haustið 1941, í kjöl- far útgáfu sinnar á Laxdœlu. í greininni, sem ber titilinn „Stafsetning enn“, ver Halldór útgáfuna og segir að við undirbúning hennar hafi hann meðal annars haft samráð við „ýmsa helztu menntamenn landsins og gáfumenn og ýmsa beztu málfræðinga vora“. Hann nefnir sérstaklega nöfn tveggja fræðimanna við þetta tækifæri, þeirra Jóns Helgasonar og Sigurðar Nor- dals, og bætir við: „hefur hinn síðari stutt mig að þessu verki með góðum ráðum“.21 í fullu samræmi við þær hugmyndir sem fram komu í ritgerð Sig- urðar um Hrafnkötlu ári áður, gerir Halldór ennfremur lítið úr heimildar- gildi Laxdœlu í formála sínum, en leggur þeim mun meiri áherslu á söguna sem skáldverk: Skáldi Laxdælu eru kunn öll meðul siðmenntaðs skáldskapar. Hornsteinar hans eru sem sagt forn yrkisefni goðkennd djúprætt í kynstofninum. Yfir þau reisir hann síðan verk sitt af raunsærri þekkingu á mannlífi síns tíma, þrettándu aldar, og upphefur þó söguna í hæðir rómantískrar skáldstefnu aldarinnar. Sannfróðlega viðburði og pers- ónur sníður hann auk þess frjálslega í hendi sér og beygir undir lögmál skáldverks síns. Vinnubrögðin eru að því leyti ekki frábrugðin aðferðum beztu sagnaskálda seinni tíma.22 Fróðlegt er að tengja þessa síðustu setningu Halldórs þeim orðum Sigurðar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.