Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1996, Page 151

Andvari - 01.01.1996, Page 151
ANDVARI OFBELDI TIMANS 149 Þrá þeirra er fyrst og fremst viðbragð við vöntun eða skorti sem brýtur oft á tíðum skemmtilega í bága við „þekkingu“ samfélagsins á þörfum manns- ins. íbúar borgarinnar eru gagnteknir af kynferði en á hátt sem ýkir kyn- lífsáhuga okkar eigin menningar eins og Foucault lýsir honum. Þannig er kynlífið fyrirferðarmesta neysluvara borgarinnar. Auglýsingaskilti sem vekja athygli á hjálpartækjum ástarlífsins bera vitni um að samfélagið virð- ist eiga svar við hvers kyns óreiðu í hvatalífinu; við eigum svar við öllu, seg- ir ein persóna bókarinnar. Engu að síður einkennist tilfinningalíf borgar- búa af stórkostlegri ófullnægju og má í því samhengi nefna skólastjóra Hins ríkisrekna skóla úthafsþrárinnar, Sonju Lísu Hrís, sem rannsakar það sem erlendar konur hafa fram yfir konur í Dyrunum þröngu og situr fyrir Þór- unni á ólíklegustu stöðum. Sjálf yfirgefur Þórunn borgina líkamlega og andlega ófullnægð eftir samband sitt við Ágúst, sem sagður er í háska staddur „vegna útjaskaðrar ævintýraþarfar sem var vitlaust meðhöndluð í æsku“ (44), og megnar hvorki að fullnægja sjálfum sér né henni. Undarlegt samband þeirra, sem einkennist af misheppnuðum samförum og glötuðum tækifærum (heimili Ágústs er einmitt við „Götu hinna glötuðu tækifæra“ sem Þórunn kallar í lok sögunnar götu lífs síns), bindur þessa kynlegu frá- sögn saman. Hún hefst á kyndugum ástarleik þeirra á hótelinu Englar æsk- unnar og henni lýkur er Þórunn brunar út úr borginni á mótorhjóli elsk- hugans eftir að hafa gengið af honum „dauðum“. Mörk á milli ástar og kynhvatar eru brotin niður í þessari sögu: mark- aðsöflin höfða bæði til líkama og sálar í auglýsingum sínum. Ástin býr ekki yfir göfgandi eðli heldur verður henni ekki lýst án skírskotunar til kynferð- islegrar fýsnar eða líkamans. Táknmál hans ber uppi merkingu textans og nær hámarki í glósubók Ágústs þar sem finna má „Landakort tilfinning- anna“, sem minnir þrátt fyrir óbærilegan léttleika á hugsun fyrri tíma. Lík- ami og kenndir eru þar eitt: í olnbogum býr metnaðurinn, í hárinu væntum- þykjan, í hjartanu ástin; augabrýrnar tákna hin yndislegustu takmörk hverrar manneskju (sjá 153-4). Á þennan hátt ögrar sagan rökviti okkar, þó aldrei án þess að missa sjónar á veruleikanum; gildir þar einu hvort skír- skotað er til móðurástar eða íslenskrar skattheimtu á milli þess sem sögu- hetjan talar við fallegasta tré heimsins og á samræði við svín. Söguna ein- kennir raunar þetta tvöfalda sjónarhorn sem kenna má annars vegar við fantasíu en hins vegar við súrrealisma. Hún ógnar ekki heiminum með því að leysa hann upp eins og fantasían gerir en með því að hafna rökvitinu gerir hún uppreisn í anda súrrealismans gegn heimi sem er grundvallaður á skynsemi og viljanum til að lifa af. Skáldsaga Kristínar gerir sér leik að viðhorfi þeirra sem líta á sálarlíf mannsins sem völundarhús eða skuggaveröld sem orð fá ekki lýst nema að takmörkuðu leyti. Þráin er ekki felld í fjötra lýsingar og flokkunar, líkt og í
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.