Andvari - 01.01.1881, Blaðsíða 6
2
Jón Guðmundsson.
vel á Jón og bauð rnóður hans að taka hann í hálfs-
mánaðartíma; kvað það réttast, að Greta litla gæii honum
með sér grautinn sinn; en það æxlaðist svo, að vistin
varð nokkuru lengri, því hjá þeim hjónum var Jón
eins og í beztu foreldrahúsum til þess er hann var 15
vetra; þau hjón komu honum í barnaskólann er þá var
í Reykjavík og Árni »Reynistaðamágr<« hélt; þar lærði
hann lestr s'krift og reikning og lærdómskverið, og var
á 13. árinu staðfestr af Árna Helgasyni, er þá var prestr
í Reykjavík. Alla þá stund er Jóu var hjá Bjering
var hann lítill vexti, en öllum sem sáu þenna litla pilt
þótti eptirtakanlegt, hvað hann var ófeilinn og einurðar-
góðr, og hvað hann skilaði erindum skorinort og greini-
lega, og opt hafði Sigurðr land- og bæjarfógeti Thor-
grimsen talað um það, að Jón væri líklegt mannsefni,
því opt var Jón sendr frá fóstra sínum /il bæjarfógeta Á
með skipaskírteini og því um líkt.
fegar Jón var á 15. ári, varð Bjeringað sleppa
verzluuinni, urðu þau hjón öreigar; fór Jón þá til Sig-
urðar bónda Gíslasonar á Indriðastöðum í Skorradal,
frænda síns; voru þeir Jóu bræðrungar. Jón fór sjóveg
úr Reykjavík upp á Akranes, og var nóttina á Innra-
hólmi hjá Ólafi. sekretera, er síðar wir í Viðey, og svaf
þá nótt hjá Birni þorvaldssyni, er síðar varð mágr hans
og ástvinr; var þetta vorið 1822, sama vorið sem síra
forvaldr Böðvarsson faðir Bjarnar þessa fluttist vestan
frá Hoiti suðr að Melum. fetta sumar var Jón hjá
Sigurði bónda frænda sínum, erþáþegar fatin, að hann
mundi betr fallinn til bóknáms en bændavinnu; kom
hann honum því út að Melum til síra jporvaldar þegar um
haustið til að læra undir skóla. Hanti kom að Melum
11. okt. 1822; þá voru öll eldri systkinin í skógi; en
Hólmfríðr þá 10 vetra og líristín 9 vetra hlupa út til
að sjá litla drengiuu; minntist hann sjálfr opt þess,
hvað sér hefði þótt merkilegt kveldið eptir þegar farið
f