Andvari - 01.01.1881, Qupperneq 134
180
Um stofnun búnaðarskóla
eins og maður sjái af tilraunum þeim sem liafa verið
gjörðar með stofnun kvenna- og barnaskóla.
Máli þessu lauk svo á alþingi, að stofnun Möðru-
vallaskólans var samþykkt. Fræðigreinirnar eru þessar:
íslenzka, danska, enska, nýja sagan, einkum saga Norð-
urlanda, stutt landafæði, einfaldur reikningur, og af
náttúrufrœði einkanlega meginsetningar aflfræðinnar,
efnafræðinnar og steinafræðinnar, uppdráttur og verkleg
og bókleg búfræði. þ>essar kennslugreinir skulu kenndar
á tveimur vetrum, með 5 tíma kennslu á dag. Kennsl-
una skal byrja 1. október og enda 1. maí; það eru
rjettir 7 mánuðir. Á sumrum skal frá miðjum maí til
miðs september kennd verkleg búfræði og eina ldukku-
stund bókleg búfræði. Búfræðingnum sltal heimilt að
nota pilta þá, sem taka þátt í sumarnáminu , við þúfna-
sljettun, vatnsveitingar og aðrar jarðabætur, einnig við
hey vinnu. Fyrir vinnú sína já piltar hœfilega þóknun
eptir þvísem bújrœðingnum og piltum umsemur. þ>eim
piltum or óska, er búfræðingurinn skyldur að selja fæði
gegn sanngjarnri borgun, er amtmaður norður- og
austuramtsins á kveður. Síra Arnljótur álítur líka að
sjálfsagt sje að skylda búfræðinginn til að vera bryti
skólans, og ekki lítur út fyrir annað en að búfræðingurinn
eigi sjálfur að leggja sjer til alla búslóð, verkfæri, gripi
o. s. frv. og lána fjetilþessa; en hins vegar er líklegt, að
búnaðarskólasjóður norðuramtsins hcfði styrkt hann með
nokkru fje til þessa, ef því hefði verið að skipta. Búfræð-
ingurinn á enn fremur að gera óvissar jarðabætur án
þess að hafa von um nokkurt endurgjald fyrir þær,
eptir núgildandi lögum, og það sem verst er af öllu er
það, að hann verður að taka við jörð, sem hann hefir
ekki fengið að ráða noinu um að velja, og sem enginn
búfræðingur getur álitið heppilega til þessa fyrirtækis.
Möðruvallaskólinn er nú reistur með tilkostnaði úr
Iandssjóði; byggingin á sjálfu skólahúsinu hefir kostað