Andvari - 01.01.1881, Qupperneq 103
í Svíþjóð.
99
töluverð söfn af dýrum, jurtum og steinum, myndir á
veggjum og ýmisleg verkfæri.
Af uppdráttarlist er kennt hið einfaldasta, að draga
upp beinar og bognar línur og algengustu verkfæri,
svo og ýmislega lagaða sívala og margstrenda trékubba.
í sóng er kenndur nótnalestur, taktæfingar og söngvar.
Víðast hvar eru harmónía höfð við kennsluna. í leilc-
Jimi eru kenndar ýmsar líkamshreyfingar, stökk o. s. frv.
og einföldustu heræfingar. Við marga skóla eru trjá-
og jurtagarðar, og þar geta þau börn, er vilja, lært að
planta og fara með vanalegustu blóm og matjurtir, tré
og runna. Á seinni tímum er í ýmsum skólum farið
að kenna ýmsar handiðnir (slöjd), drengir iæra að nota
algengustu smíðatól og ýmislegt fleira, er þeim seinna
getur komið að haldi. Skólarnir eiga því ýms smíðatól,
hefilbekki og rennismiðjur o. s. frv. í Stokkhólmi
kveður mest að slíkri kennslu; í Adolf Frederiks för-
samlings folkskola lærðu t. d. margir drengir 1879 og
1880 bókband, skósmíði, skraddaraiðn o. fl. Stúlkur
læra að sauma, prjóna, vefa og flétta vandlaupa o. li.; í
bæjum þar sem tæki eru til þess læra þær að baka
brauð, matreiðslu og þvott.
í flestum alþýðuskólum er skólaárið 8 mánaða langt,
í sumum sveitum í syðri hluta landsins 9—10 mánuðir.
Kennslustundir eru 6 hvern rúmhelgan dag; sumstaðar
er að eins kennt 5 daga í viku. Stundum er annar
helmingur kennslustunda fyrir hádegi og hinn helm-
ingurinn eptir nón. Skólunum er vanalega skipt í 3
(stundum 4—5) bekki. í borgurn eru opt fleiri bekkir
en upp til sveita, af því þar er meiri aðsóknin og
bægra að fá þá kennara sem við þarf. Sumstaðar uppi
til sveita eru jafnvel eigi nema tveir bekkir og einn
kennari, kennslan er þá í bekkjunum til skiptis; meðan
annar bluti barnanna er yfirbeyrður, bafa bin kyrrlátar
æfingar og undirbúningslestur.
7*