Andvari - 01.01.1881, Side 112
108
Um skóla
Enginn fær inntöku yngri en 9 ára, annað aldurs-
takmark er eigi sett. Skilyrði fyrir því að piltar fái
inntöku er, aðþeir bafið numið það, sem nú skal greina:
1, að lesa reiprennandi;
2, að skrifa skýra liönd;
3, að þeir geti ritað sænsku nokkurn veginn;
4, hafi lært stutta biblíusögu;
5, fjórar species í heilu, hafi nokkra æfingu í huga-
reikningi, og
6, að þeir hafi lært ágrip af landafræði Norður-
landa.
Flestir eru á 10. ári, er þeir fara í sköla. J>að er
á valdi skólastjóra, ef honum sýnist svo, að taka ung-
linga yfir 15 ára í neðstu bekki skólans, þó þeir eigi
liafi þá kunnáttu, er búast mætti við eptir aldrinum.
Piltum er (eins og í Danmörku) skipt niður í latínu-
flokk (latínu-línu) og gagnvísindaflokk (real-línu). Hinir
fyrrnefndu læra að eins lítið eitt í stærðafræði og nátt-
úrufræði, en hinir hvorki latínu né grísku. þ3ó er
kennsla í 3 neðstu bekkjunum sameiginleg fyrir alla
pilta, en síðan skiptast þeir. Lærðir skólar eru í Svía-
ríki misjafnlega fullkomnir og heita þá «högre elementar-
lároverk» eða «lágre elementarlároverk» ; svo eru enn
til lægri lærðir skólar, er kallast «pedagogia». í æðri
skólunum eru 7 bekkir og þaðan af fleiri; í hinum lægri
vanalega 5. Pedagogia hafa vanalega 3 bekki. I mörgum
skólum, þar sem aðsóknin er mikil, er liverjum bekk
skipt niður í margar stofur, því kennslan verður því
áhrifaminni, sem fleiri eru í hverjum bekk. í Stokk-
hólmi eru æðri skólar, sem að eins kenna annaðhvort
fornmálin eða gagnvísindin, en annars er hvorutveggja
kennt í sömu skólunum. Hin æðri «lároverk» eru nú
33 að tölu, en hin lægri 45. «Pedagogia» eru 20 að
tölu. Allir skólar eru í þorpum eða bæjum, enginn
úti á landsbyggðinni.