Andvari - 01.01.1881, Síða 117
í Svíþjóð.
113
orðagjálfur. í efstu bekkjunum er kennt lítið eitt í
dönsku og norsku og á einstaka stað dálítil ögn í
íslenzku.
Frakknesha er kennd töluvert; þeir sem læra
fornmálin hafa í 5V 6. og 7. bekk 6 stundir á viku,
en þeir, sem læra gagnfræðin, hafa 3—4 stundum
meir. Við próf er gjörður franskur stýll.
Enslm lesa gagnfræðingar í 6 ár frá 4.-7. bekkj-
ar, 3—4 stundir á viku, en hinir læra að eins lítið eitt
í 6. og 7. bekk.
Latína. þeir sem fornmálin læra hafa 8 stundir á
viku í latínu, í 6 ár, frá 4.—7. bekkjar. í latínu er lesið
viðlíka mikið og í lærða skólanum í Reykjavík. Tvö
fyrstu árin er Iesin málfræði, létt lestrarbók og nokkuð
í Cornelius Nepos. í 6. bekk (sem er tveggja ára
bekkur) eru lesnar nokkrar bækur í Cæsar, helmingurinn
af ræðum Cicerós, ein bólc af Sallust eða Livíus, ein bók
í Virgli og 1 —2 bækur í Ovid. í 7. bekk er lesinn
hinn helmingurinn af ræðum Cicerós, og nokkrar bækur
í Livíusi, Virgli og Hóraz; þar er og lesin rómversk
bókmenntasaga, goðafræði og fornfræði. Sumstaðar
eru aðrir höfundar lesnir en þeir, sem nú voru taldir.
Við kennsluna er víða viðhöfð ýms ágæt hjálparmeðul,
svo sem stórar myndir af búningum, búshlutum og
vopnum Rómverja, stór landabréf yíir forna heiminn
og myndir af ýmsum listaverkum fornaldarinnar. Sum-
staðar eru myndastyttur úr leir eða gipsi klæddar í
fornbúninga og tilbúnar vígvélar og kastalar úr tré,
steini og málmi.
Gríslta er að eins kennd í tveim efstu bekkjunum
4—5 stundir á viku. Eptir skólalögunum á að lesa
Andvari vn. Q