Andvari - 01.01.1881, Side 123
í Svíþjóð.
119
gagnfræðingum er mest tillit tekið til náttúruvísinda og
stærðafræðar. Hver sá, sem staðizt hefur burtfararpróf
hefur tilkall til að njóta kennslu við háskólana í Lundi
og Uppsölum og læknaskólann í Stokkhólmi (karolinska
institutet). Gagnfræðingar haía og aðgang að «tekinska
högskolan» í Stokkhólmi.
Skólakúsin eru víða stórkostlegar byggingar. Á
Norrmalm í Stokkhólmi var í ágúst 1880 verið að enda
við byggingu á stórum skóla, sem fremur má kaila höll
en vanalegt hús. Skólinn var eigi fullbúinn og þó var
búið að kosta til bans meir en miljón krónum. Jar
eru ótal bekkir, kennslusalir sérstakir fyrir uppdráttarlist,
efnafræði og eðlisfræði, salir fyrir söfn skólans, stór
kirkja eða kapella, leikfimissalur, söngstofur, leikstofur,
hátíðasalir og margt fleira; húsið er prýðilegt utan og
innan, hvar sem augað lítur steinlögð gólf, háar hvelf-
ingar, langar súlnaraðir, útskornar loptsvalir o. m. fl.
og nærri of mikið í borið. Víða annarstaðar í Svíaríki
eru geysi-mikil skólahús; í Uppsölum kostaði latínuskólahús
300,000 kr., þaraf gengu 208,000 til að reisa aðalhúsið,
25,000 kr. fyrir hitavél, sem leiðir heita gufu um allt
húsið, 14,000 kr. fyrir gas- og vatnspípur, sem liggja
í hvert herbergi, 7,000 kr. fyrir orgel, 6,600 kr. fyrir
leikfimis-áhöld, 6,000 kr. fyrir plöntun á trjágarði o.
s. frv. Auk þess kostaði hús fyrir skólastjóra 12,600 kr.
Skólinn í Nörrköping kostaði 293,000 kr.
— í Linköping — 245,000 -
— í Gautaborg — 237,000 -
— í Jönköping — 222,000 - o. s. frv.
í öllum skólahúsum er ágætlega séð fyrir að halda
alstaðar jöfnum hita og góðu lopti. Piltar sitja eigi á
löngum trébekkjum og við löng borð, eins og víða tíðk-
ast, heldur liefur hver piltur borð eða púlt og stól.
Stólar og borð eru mishá eptir stærð piltanna og í
neðri bekkjunum eru sumstaðar járnfætur á borðum og