Andvari - 01.01.1881, Blaðsíða 10
6
Jón Guðmundsson.
skömmu síðar kemr Jón lector til Sigurðar landfógeta,
og berst þá talið að skólavist Jóns. Segir Sigurðr við
lector: »pér standið mest á móti því að Jón litli komist
í skóla.c Lector segir: »Eg hefi ekkert á móti að hann
komi; eg er bara svo hræddr um að hann detti úr
stiganum og slasist.« Út úr þessu sló í hörkurifrildi
milli þeirra, og meðal annars segir Sigurðr við lector:
»Eg skal óðara útvega yðr læknisattest upp á það, að
þér sjáltr getið dottið úr stiganum og háIsbrotnað.« En
hver sem voru orðaskipti þeirra, þá komst Jón í skóla
og útskrifaðist 1832. En er hann var orðinn stúdent,
fór liann að fullu og öllu til Úlstrúps fógeta og var hjá
honum skrifari meðan hann hafði hér embætti; fékk
svo umboð Kirkjubæjarklausturs/l835; en vorið 1836 í/
apríl var hann af pórði Sveinbjarnarsyni, er þá var settr
stiptamtmaðr, skipaðr til að hafa á hendi land- og
bæjarfógeta embættið, og gegndi hann því til hausts-
ins 1836; þá fór hann austr að Holfi undir Eyjafjöllum
og gekk þá að eiga 26. sept. æskuvinkonu sína Hólm-
fríði porvaldsdóttur; þann vetr voru þau hjón í Holti,
en reistu vorið eptir bú á Kirkjubæ á Síðu og bjuggu
þau hjón þar 10 ár; höfðu þau þar brátt rausnarbú og
blómgaðist vel hagr þeirra; fylgdist það að, að þá var
mörg þau ár árferði í bezta lagi, og Jón fyrirhyggju-
maðr hinn mesti og útsjónargóðr. £>ar eignuðust þau
börn þau 3 er þeim varð auðið að eiga. Mörg þessara
ára fór bann í vorþingaferðir með sýslumanni Skapt-
fellinga, og gjörðist hann þannig gjörkunnugr lands-
háttum og högum þoss héraðs, og ávann hann sér á
þeim árum þann þokka og það traust héraðsbúa sinna,
að hann var kosinn fulltrúi Vestr-Skaptafellssýslu þegar
alþingi var stofnað, og jafnan endrkosinn til þess er
aukakosningarnar fóru fram 1869. Á þessum árum
samdi hann reikningsbók, sem prentuð var í Viðey 1841,
að dómi þeirra er vit hafa á hentuga þeim er hún er