Andvari - 01.01.1881, Page 45
ábyrgðar-lög.
41
valrla, hvað sé stjórnarskrárbrot. — Ef monn játa þetta
rétt vera, þá leiðir aftr af því, að það er heimilt að
láta ábyrgðarlögin skýra og fylla ákvæði stjórnarskrár-
innar, ef það er gjört í hennar anda. Ef menn vilja
vitna í § 61 í stjskr. um það, að viðaukar við skrána
verði eigi gefnir með almennuin lögum, en fara því
jafnframt fram, að slík fyllandi og skýrandi ákvæði í
ábyrgðarlögum sé viðauki, þá svara ég því, að stjórnar-
skráin sjálf tiltekr ýmisleg atriði, er breyta megi eðr
skipa með lögum, og að nefnd ummæli í § 3 heimila
að »skipa nákvæmar fyrir um reglur« fyrir »ábyrgðinni«.
fetta orð »nákvæmar« bindr því, að því ég bezt fæ
séð, nefndar »reglur« að eins við það, að þær skuli eigi
stríða móti orðum né anda þeirra grundvallar-veglua.,
sem stjórnarskráin sjálf setr.
Ég verð því að ætla, að þýðing nefndra orða í § 3
í stjórnarskrá vorri sé alveg sú sama sem í § 12 í
stjórnarskrá Dana (inni endrskoðuðu). J>ar stendr:
“Ministrene ere ansvarlige for Regjeringens Forelse;
deres Ansvarlighed besfemmes nærmere ved Lov« (þ. e.
Ráðgjafarnir bera ábyrgð af sfjórnarathöfninni; um ábyrgð
þcirra skal nákvæmar fyrir skipað með lögurn).
Ég leyfi mér því að byggja á þessum skilningi
Qiínum sem róttum. Og þá verðr það mest áríðandi
atriði ábyrgðarlaga, að taka upp ýmislegar þær ákvarð-
anir stjórnarskrárinnar, er tvíræðar mættu virðast, og
0l'ða þær svo, helzt með því að auka orðum við (en
láta orð skrárinnar halda sér), að tvímæli takist af um
Það, hvað ábyrgð valdi og hvað eigi.
Einkanlega áríðandi atriði mundi það verða, að
ákveða nákvæmari reglur um, að hve miklu leyti bráða-
hyrgða-lög geti álitizt nauðsynleg. það má vera miklu
þægilegra fyrir ráðgjafa, að bafa ákveðnar reglur eftir
að fara í þessu efni, að minsta kosti að miklu leyti;
þann á þá minna á hættu. En það er eins áríðandi