Andvari - 01.01.1881, Síða 124
120
Um skóla
stólum, greyptir niður í gólfið, svo ekkert er hægt að
bifa né brjóta. Reiknispjöld og landabréf á veggjunum
eru hreyfanleg eptir því sem á þarf að halda o. s. frv.
Hvergi er svo tilhagað að piltar búi í skólahúsinu, enda
eru allir lærðir skólar Svía í bæjum og borgum.
fess var áður getið, að kennsla öll er ókeypis og
það er að eins lítið fé, er piltar þurfa að leggja til
skólanna, og þeir, sem mjög fátækir eru, geta alveg
komizt hjá öllum gjöldum. Hver piltur verður að
borga 6 krónur við inntökupróf og auk þess 12—14 kr-
á hverju missiri til ýmsra skólasjóða. fessir eru hinir
helztu sjóðir við alla lærða skóla í Svíþjóð:
1. Sjóður, sem ætlaður er til þess að kaupa fyrir
verkfæri, kennsluáhöld og bækur til skólans; í hann
leggja piltar 4 kr. og 50 a. á missiri.
2. Sjóður til viðurhalds skólahúsinu: í hann ieggur
hver piltur 5 kr. á missiri.
3. Sjóður til eldiviðar og Jjósa; í hann leggja
piltar 2—3 kr. á missiri.
4. Sjóður til styrktar fátækum piltum.
5. Sjóður til styrktar fyrir fátæka og ellihruma
uppgjafakennara.
Yið marga skóla eru stór og mikil bókasöfn, og er
einhver kennaranna valinn til að vera bókavörður og
hefur fyrir það dálitla þóknun. Hið stærsta skólabóka-
safn er í Linköping, þar eru 40,000 bindi prentaðra
bóka, 1,500 papírshandrit, 500 bréf og skjöl rituð á
bókf'eli, 1,000 útleudar og 12,000 innlendar «doctors-
dispútazíur» o. s. frv. í Skara eru 20,000 bindi, í
Wexiö 17,000, í Gautaborg 13,000, í Westerás 12,000
o. s. frv. Víða eru stór söfn af náttúrugripurn og verk-
færum.
Árlega veitir stjórnin töluvert fé til ferðakostnaðar
fyrir þá kennara, sem erlendis vilja kynna sér skólafyrir-
komulag, læra mál og frama sig á ýmsan annan hátt.